Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Page 54

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Page 54
40 BROWN ÞRAUTSEIGI N. kv. fcvo að um munaði — hvað þá ef hann gæti Lrakið hann óviðgerðan út á rúmsjó •— þá var mikið unnið. Vafalaust voru brezk her- slcip að leita hans, og því lengur sem hann yrði að halda kyrru fyrir, því meiri líkur voru til að hafa upp á honum. Fregnirnar af afdrifum „Charybdisar“ hlutu að hafa komið mörgum skipum á slóð hans. Ef unnt væri að halda „Ziethen“ óvirkum í nokkra daga, þá hlaut allt að fara vel. Að vísu gat það kostað hann lífið, en hvað um það — Nelson, Blake og Drake höfðu líka látið líf- ið í öðrum stýrjöldum. Þó að honum, tví- tugum manninum, rynni kalt vatn milli skinns og hörunds, þegar hann iiugsaði til dauðans, þá breytti það í engu áformi hans né hélt aftur af honum. Áhrif Agöthu Brown höfðu borið ávöxt, og ef til vill bætti það líka um, að forfeður hans í karllegg höfðu verið vígreifir sjóliðsforingjar mann fram af manni. Flótti Browns var ósköp éinfaldur í fram- kvæmd, og það var hann mestmegnis vegna þess, að enginn bjóst við, að hann kærði sig um að flýja — hver mundi líka hafa löng- un til að vera skilinn einn eftir á vatnslausri eyju? Svo var það á hinn bóginn léttir að yera laus við hann, því að á víkingaskipi eru herfangar til óþæginda; ef þeir eru lok- aðir inni í öryggis-skyni, þá er það ill með- ferð, og engan langaði til að gera Brown neitt til meins. Raunar var hægt að láta hann hjúkra sáru Bretunum, en samt var verra en ekki að hafa hann á skipinu. Við endann á göngunum framan við sjúkraklefann stóð hengigrind fyrir vopn; héngu tólf rifflar í grindinni og tólf sam- slæður skotfæra. Af því að „Ziethen“ var víkingaskip, varð hann að geta sent vopn- aða menn yfir í önnur skip eða til land- göngu, ef svo stóð á, og rifflar þessir og skotfæri voru ætluð einhverri bátshöfninni. Brown hafði tekið eftir þessu oftar en einu sinni, en nú opnaði hann hurðina og lædd- ist hljóðlega fram fyrir, til nánari athug- unar. Rifflarnir voru vel smurðir, svo sem nauðsynlegt er í hitabeltinu. Allur útbún- aðurinn var í beztu reglu, svo að grípa mátti til hans, hvenær sem var. Hann þreif- aði í pokana; þei.r voru fullir, sextíu sam- stæður skothylkja í hverjum. I leðurpokun- iim aftan á hverju belti voru tveir allþungir Lögglar — dagsnesti í hvorum. Váínsflösk- urnar voru samt tómar. Brown greip tvær þeirra, læddist aftur inn í sjúkraklefann og fyllti þær. Hanit hlustaði vandlega, en heyrði engan umgang og læddist aftur fram. Hann tróð báðum vatnsflöskunum í sarna beltið, tæmdi pokana úr öðru belti og fyllti vasa sína með skotfærum. Nesti tók hann úr öðru belti og batt það á sig, og þá var hann tilbúinn að flýja. — Ef hann gat ekki tafið „Ziethen“ um heila viku, þar sem hann hafði nesti og vatn til tveggja daga og 120 samstæður skothylkja, þá var hann illa svikinn! Það var sitt hvað að vera tilbúinn að ílýja og vera kominn á land á Resolution með allt sitt farteski. Brown vissi vel, að allt gat mistekizt og þá yrði honum holað niður í fangageymslu, þaðían sem hann mundi ekki eiga afturkvæmt. Samt varð að hætta á það. Hann hafði metið líkindin og talizt svo til, að þau væru ekki mjög fráleit. Hann þurfti á stillingu og heppni að halda. Hvað sem stillingunni leið, þá var það skyldan, sem rak á eftir honum, og hún var algerlega óeigingjörn og persónulaus. Hann var eins konar vígvél, lifandi að vísu, en ekki viðkvæmari en aðrar vélar. Niðamyrkur var úti; nýkviknað tunglið var ekki komið, upp fyrir hæstu brúnir eyj- arinnar, svo að engri ljósglætu sló á lónið eða skipið. Brown lyfti útbúnaði sínum upp

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.