Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Síða 55

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Síða 55
N, kv. BROWN ÞRAUTSEIGI 41 á axlir sér og spennti hann fastan; svo tók hann riffil, batt hann við sig og læddist var- lega upp á þilfarið. Hann fikaði sig í myrkrinu skríðandi að bát á bakborða; varðmaðurinn varð hans ekki var. Brown skar með hnífnum bindingana af yfirbreiðslu bátsins, seildist undir hana og náði eftir litla leit í tvö björgunarbelti, sem þar voru geymd. Oðru þeirra vafði hann utan nm riffilinn eins þétt og hann gat; það hefði orðið Ijóta sneypuförin, ef vopnið hefði sokkið og hann slæðzt vopnlaus á land á Resolution. Hinu beltinu vafði hann um sig. Síðan dró hann út eitt af stögum báts- ins og lét það síga hægt niður utanborðs. Þá batt hann riffilinn við sig, greip um stagið og skreið út fyrir borðið. Honum var mjþg erfitt um að hreyfa sig vegna þess, hvað björgunarbeltin voru fyrirferðarmikil og farangurinn þungur, en með því að neyta þolinmæði og krafta tókst honum að fika sig niður stagið, án þess nokkuð heyrðist til hans. Að lokum fann hann vatnsborðið und- ir fótum sér og lét sig síga varlega niður, þangað til höfuðið eitt stóð upp úr, en björgunarbeltin vörnuðu því, að hann sykki dýpra. Eftir það gekk allt betur; hann spyrnti sér varlega frá skipshliðinni, lagð- ist á bakið með riffilinn á brjóstinu og svamlaði afar gætilega í áttina að landi. Vatnið var nýmjólkur-volgt. Hálfri stundu síðar bar hann að klettunum, en tíu mínút- ur enn varð hann að svamla með fram þeim, þangað til hann gat náð fótfestu í fjöruborð- inu og risið upp og litið í kringum sig. Rönd af nýjú tungli var þá komin upp, og við glætuna af því gat hann greint snar- bratta brekku fyrir ofan sig. Hann snaraði byrðinni fyrst af sér, lagaði hana síðan og hagræddi sem bezt hann gat og svo hóf hann örðuga klifurgöngu upp stórgrýtta brekk- una. Brown vissi raunar ekkert um Galapagos- eyjar, og satt að segja vissi hann ekki held- ur, að hann var þangað kominn; þess vegna gerði hann sér enga grein fyrir, hve hræði- lega örðugleika hann ætti í vændum. Eyjan er eitt klungurhraun, vaxin kaktus hátt upp í hlíðar; ef klifra átti faðms lengd, varð að klöngrast yfir hrufótt stórbjörg og gegnuiu göddótta kaktusrunna, svo að innan skamms var hann allur hruflaður á höndum og fót- um, og fötin héngu í tætlum utan á honum; eftir fyrstu tuttugu faðmana var hann löð- ursveittur, lafmóður og staðuppgefinn; hon- um leizt ekki á blikuna. En fátt er svo með öllu illt, að ekki fylgi nokkuð gott. Ef send- ir yrðu vopnaðir sjóliðar á eftir honum, rnundi leiðin verða þeim jafnerfið og sein- farin og honum, og ef hann lægi þá í hent- ugu fylgsni með riffilinn, mundi hann hæg- lega geta varizt mannmörgum hóp þeirra. Áfram hélt hann samt fálmandi eftir hand- festu og fótfestu í myrkrinu, skreið innan um stórgrýti og slútandi dranga, þangað til hann staðnæmdist að lokum undir egg- hvassri strýtu á brekkubrúninni. Honum leizt svo á, að þar væri gott fylgsni og að- staða til varnar, lagðist niður með riffilinn við hlið sér, máttlaus af þreytu, og stein- sofnaði. 13. kapítuli. Um það leyti, sem Brown var að klifra upp brekkuna á Resolution og lá í fasta- svefni undir klettastrýtunni, voru mikil tíð- indi á ferðum. Frá stöðvum á meginlandinu höfðu „Ziethen“ borizt loftskeyti þess efn- is, að von Spee hefði ráðizt að hring óvina- herskipa, sem að honum steðjuðu. Brezki flotaforinginn Cradock hafði mætt honum með tveim léttvopnuðum beitiskipum á móti

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.