Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Side 57

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Side 57
N. Kv. BROWN ÞRAUTSEIGI 43 þegar augljósar; hann fyllti skotgeyminn og beið, viðbúinn öllu. Tæpum fjórðungi mílu fyrir neðan iá „Zietben“ grafkyrr inn undir miðju lón- inu. Vatnsflöturinn í kringum hann var spegilsléttur, nema hvað aðeins vottaði fyr- ir gárum við skutinn og akkerisfestarnar af aðfallinu; það var líkast því sem ekkert líf leyndist með honum, nema upp úr reyk- háfnum rauk lítið eitt. Þegar betur birti, fór Brown að geta greint hvítklæddar mannverur á þilfarinu og efri pöllunum, og þá fór hann að hand- fjalla rifilinn og miða á mennina til skipt- is, en gætti þess þó að snerta ekki gikkinn; skothylkin voru of dýrmæt til að eyða þeim á hvern sem var. Rétt á eftir var hvíta merk- ið með svarta krossinum dregið að hún; vinnudagurinn á „Ziethen“ var runninn upp, og jafnskjótt var tekið til verka á stjórnborða. Brown sá greinilega, að byrjað var á því, sem hann beið eftir. Tveir hengi- pallar voru látnir síga niður kinnunginn, hvor sín megin sprengjugatsins, og livít- klæddir menn fetuðu sig eftir kaðalstigum niður á þá. Losa varð .um rifnu plöturnar, ijarlægja þær og festa nýjar í staðinn. Brown lyfti rifflinum upp að öxlinni og lagði kinnina að skeftinu. Meðan hann var að taka miðið, flaug honum margt í hug. Ef hann tæki ekki í gikkinn, mundi hann ekki verða eltur; gert yrði við „Ziethen“ og hann mundi sigla sína leið, en sjálfur mundi hann verða eftir og ef til vill kom- ast þaðan á einhverju skipi, sem slæddist fram hjá. Ef hann hleypti af og deyddi ein- hvern sjóliða á „Ziethen“, mundu hundruð þýzkra sjóliða verða svarnir óvinir hans og ekki hætta, fyrr en þeir gengju af honum dauðum. Dauðinn lá öðrum megin hryggj- ar, en líf og frelsi hinum megin; hann varð að velja um á stundinni, en ástæða til að hika við. Samt hikaði hann ekki hót. Kvöld- ið áður hafði hann tekið ákvörðun, og þeg- ar maður eins og Brown tekur ákvörðun, þá er hvorki staður né stund til að hika. Hann miðaði vandlega. Gegnum sýling- una á afturmiðinu gat hann séð hvítan þrí- hyrning — hvíta treyjú manns á hengipall- inum. Broddur frannniðsins nálgaðist sýl- inguna, mjakaðist hægt upp á við, þangað til hann var í beinni línu við hana. Brown hélt snöggvast niðri í sér andanum, þreif- aði eftir gikknum, þrýsti á hann og hleypti af. Snöggur hvellurinn bergmálaði í klett- unurn í kring. Zimmermann vélvirki var í bezta skapi yfir því að eiga að bora burt hnoðnaglana á skemmdu stálplötunum. Hann hlístraði, rneðan hann var að tína til verkfærin og kastaði gamanyrðum til þeirra þriggja manna, sem með honum voru á hengipallin- um. Hann hafði alltaf haft mætur á verk- færum og vélum og hlakkaði til að taka á kunnáttu sinni. Honum varð ekkert hugsað heim til sín í Hamborg, jafnvel ekki til eig- inkonunnar ungu, sem hann hafði ekki séð í átján mánuði; hann gaf sig allan að verk- inu. Þá smaug eitthvað inn í vinstri síðuna á honum rétt við hjartað, hann kenndi stings og svo féll hann dauður út fyrir handriðið á pallinum, en í fallinu festi hann fótinn milli rimla og hékk þannig, að höfuðið vissi niður. Á plötunni, sem hann hafði ver- ið að fást við, sást málmsletta eftir kúluna, sem smogið hafði í gegnum hann og síðan flatzt út. — Ekkjunum í Hamborg hafði fjölgað um eina. Fyrst í stað virtist enginn taka eftir því, þegar Zimmermann féll út af pallinum og hékk þar öfugur; en Brown sá hann falla, smellti til skothleypi riffilsins, miðaði aft- ur tafarlaust og hleypti af. Annar maður, sem einmitt var að gá að Zimmerman, féll

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.