Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Side 62

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1958, Side 62
48 BROWN ÞRAUTSEIGI N. kv. tkipaði svo fyrir að tvö hundruð manna sveit skyldi búast til landgöngu, og var því tekiÖ með fagnaðarópum. Viðgerðinni átti að halda áfram. Hlífum átti að koma fyrir á hengipöllunum, skjóta út bómum og negla á þær járnplötur, svo að viðgerðarmennirnir gætu unnið í skjóli fyr- ir skotum handan úr hlíðinni. Farið var að vinna að þessu í skyndi — en þó tafði það „Ziethen“. Brown lá í hreiðri sínu uppi í klettunum og hafði gát á því, sem gerðist. Klettarnir voru svo heitir orðnir af sól, að það var eins og hann lægi á steikarrist. Oftar en cinu sinni varð hann að grípa til vatnsflösk- unnar, og honum var það meiri þjáning að taka hana aftur frá vörum sér en að þola þorstann sjálfan; hann hafði lokiÖ helm- ingnum úr annarri flöskunni og stillti sig um að eyða meiru úr henni. Svitinn rann niður andlitið á honum; og hann strauk hann af sér við og við með handarbökunum og slitrum þeim, sem eftir voru af treyju- ermunum. Hann hreinsaði riffilhlaupiÖ og athugaði vel lásinn, hvort sandkorn og ryk liefðu í hann borizt, svo að hann stæði á sér; sömuleiðis taldi hann skothylkin og hagræddi þeim í vösum sínum. Honum datt í hug að fá sér matarbita, en hætti við það, því að liann kenndi ekki sultar, og geðæs- ing og sólarhiti í 'sameiningu vekja ekki matarlyst að jafnaði. Þannig leið góð stund. Á meðan sátu þeir von Liitz og foringjar hans yfir landabréfi af Resolution og skipu- lögðu leitina og árásina á Brown. Nú skyldi til skarar skríða og ekkert glappaskot gert eins og um morguninn, þegar fámenn land- göngusveit var send yfir í illkleifa hamra, þar sem vopnaður illvirki gat neytt sín til íullnustu. Áætlunin var gerð með þýzkri ná- kvæmni. Allir áttu að hafa með sér nesti og vatn og hverjum hóp fyrir sig var ætlað til- tekið svæði. Ekki mátti rasa að neinu, held- ui umkringja Brown og æra hann upp úr felustað sínum, áður en ráðizt væri á hann. Skytturnar í lyftingum skipsins áttu að vera á stöðugu varðbergi og skjóta yfir í hlíðina, ef þeir yrðu þar nokkurrar hreyfingar var- ir. Leitinni skyldi haldið áfram alla nótt- ina, og þegar Brown væri náð, dauðum eða lifandi, átti að gefa tiltekið merki, svo að allir gætu snúið aftur til strandar sam- stundis. Allt virtist því vera í bezta lagi undirbúið. Ein veila var þó í áætluninni; þeir, sem hana gerðu, vissu eklci, hve erfitt var að komast leiðar sinnar um eyjuna. Brown tók eftir því, að eitthvað mikið \ar á seyði úti í „Ziethen“. Merkjaskeytin þýzku hafði hann auðvitað ekki skilið, og nú voru liðnir tveir tímar síðan. Mönnum fór að bregða fyrir bæði á efra og neðra þilfari; þeir reyndu að forðast að láta sjá lil sín, því Brown skaut á þá jafnskjótt sem færi gafst. Hann hitti að minnsta kosti fjóra menn, sem annað hvort lágu kyrrir eftir eða skriðu í skjól. Nokkrir skipsmenn skutu á móti, en af því þeir vissu ekki með neinni nákvæmni, hvar Brown leyndist, varð hon- um ekkert mein af skotum þeirra. Bómu \ar rennt út frá stjórnborÖa, og frá henni breidd niður skjólhlíf, sem huldi alveg yfir skemmdirnar á kinnungnum. Brown skaut tvisvar á menn þá, sem að þessu unnu. í sama bili var önnur skjólhlíf breidd fyrir efra þilfarið, svo að úr því sá hann lítiÖ sem ekkert, hvað aðhafzt var úti í skipinu. Framh. NÝJAR KVÖLDVÖKUR Utgefandi: Kvöldvökuútgáfan, Akureyri. Ritstjórar: Jónas Rajnar, Gísli Jónsson. Framkvæmda- stjóri: Kristján Jónsson. PrentsmiSja Björns Jónssonar.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.