Templar - 20.02.1912, Blaðsíða 1

Templar - 20.02.1912, Blaðsíða 1
TEMPLAR. XXV. Stefnuskrá Good-Templara. I. Algerð afneitun allra áfengisvökva til drykkjar. II.Ekkert leyfi I neinni mynd, hversu sem á stendur, til að selja áfengisvökva tildrykkjar. III. Skýlaust forboð gegn tilbúningi, innflutningi og sölu áfengisvökva til drykkjar; forboð samkvæmt vilja þjóðarinnar framkomnum ( réttu lagaformi, að viðlögðum þeim refsing- um, sem svo óheyrilegur glæpur verðskuldar. IV. Sköpun heilsusamlegs almenningsálits á máli þessu, með ötulli útbreiðslu sannleikans á alla þá vegu, sem mentun og mannást eru kunnir. V. Kosinng góðra og ráðvandra manna til að framfylgja lögunum. VI. Staðfastar tilraunir til að frelsa einstaklinga og bygðarfélög frá þessari voðalegu bölvun, þrátt fyrir allskonar mótspyrnur og örðug- leika, þar til vér höfum borið sigur úr být- um um allan heim. ísland erlendis. íslandi heíir verið veitt meiri og á- kveðnari eftirtekt víðsvegar um heim eftir að fréttin um aðflutningsbann á á- fengi barst héðan út um löndin. Mótstöðumenn bannsins hafa flult ýmsar sögur um álit manna meðal er- lendra þjóða, og er óhætt að fullyrða, að mest af því er markleysa tóm, til- búningur og ósannindi, sem sett hefir verið saman á ráðstefnum andbanninga, á skrifstofu »Ingólfs«, hjá Júlíusi eða við stríðsöl á Brúsastöðum. Nú um nýárið hefir íslands verið minst Myndasafn „Templars“. Br. 8ira Björn Þorláksson er læddur 15. apríl 1851 á Gautlöndum við Mývatn. Foreldrar: Porlák- ur Jónsson (d. 4. des. 1870) prestur á Skútustöð- um, og síðasta kona hans Rebekka (d. 6. apr. ’64) Rjörnsdóttir, bónda á Bakka á Tjörnnesi, Páls- sonar. Útskrifaðisl úr Rvíkurskóla 30. júni 1878 með 1. einkunn og prestaskólanum 24. ág. 1873 með 1. eink. Vcitt 12. ág. Hjaltastaður og Eiðar og vígður 30. s. m., 26. marz 1884 Dvergasteinn og 1888 jafnlramt Klyppstaður. Pingmaður Seyð- firðinga 1909. Kvæntur (24. júlí ’92) Björgu Ein- arsdóttur, bónda á Stakkahlíð, Stefánssonar. Pau lijón eiga þrjá sonu á lifi: Þorlákur, er stundar nám við Kliafnarháskóla, Valgeir í 5. bekk hins alm. mentaskóla og Steingrímur, yngstur þeirra hræðra, er heima. Sira Björn er meðal elztu meðlima Reglunnar. Ilann hefir ávalt unnið að málefnum hennar af mikilli atorku. 011 stig hennar liefir hann tekið, og altaf hefir liann verið umboðsmaður í stúku sinni. Sem fulltrúi hefir hann setið á mörgurn stórstúkuþingum. 7'ryggari og staðfastari meðlim á Reglan ekki og áliugasamari um mál hennar. — Á alþingi 1909 gerðist hann aðalflutnm. bannlaganna, þeg- ar br. Björn Jónsson varð ráðherra og fylgdi Sn-a Ujorn Porláksson. þvi máli fast fram. Pjóð vor mun ætíð minn- ast hans með þakklæti og þeirra þingmanna, er báru það mál til sigursælla úrslita. Var síra Björn á þingi sér og kjördæmi sínu til sæmdar.— Hann er kennimaður í fremstu röð. Búsýslumaður er hann míkill og hefir bætt og prýtt Dvergastein að miklum mun. Öll vel- ferðarmál utanhéraðs sein innan lætur hann mikið til sín taka. Hann er íastlyndur og tröll- tryggur, þrekmikill og einarður, hjartagóður og hjálpfús. Heimíli þeirra hjónaerhið prýði- legasta og gott er að bera að garði þeirra sem gestur. Sira Björn má hiklaust telja einn af nýtustu og beztu mönnum þjóðar vorrar. sérstaklega i ýmsum löndum vegna bann- laganna og hafa menn látið gleði sina i ljósi yfir því, að nú frá 1. jan. hafi ekki mátt flytja inn nokkurn áfengis- dropa. »Reformatorn« i Stokkhólmi flytur 21. des. f. á. grein um bannlögin hér og skýrir frá innihaldi þeirra. Blaðið byrj- ar greinina með þessum orðum: »Hér í Svíþjóð veita menn ástandinu á íslandi mikla athygli, því frá næstu áramótum hefst þar alment áfengisbann«. í sama blaði frá 11. f. m. er grein, sem gefur stutt og gagnort yfirlit yfir bindindishreyfinguna í ýmsum löndum árið sem leið. Þar er íslands sérstak- lega minst þannig: »ísland endar gamla árið með því að hringja út áfengið. Áfengisdrykkir hafa aldrei verið búnir til á íslandi. Áfeng- isverzlun hefir minkað mjög liin síðari árin. Nú er frá 1. jan. 1912 jafnvel innflutningur bannaður, og þegar þær birgðir, sem nú eru i eigu einstakling- anna er uppdrukkið (það hefir verið flutt inn mikið síðustu mánuðina), þá er ísland »þurkað«, maður vonar að eilifu. Framkvæmd bannlaganna á íslandi mun gefa reynslu, sem við hér í Sví- þjóð getum fært oss í nyt, þótt staðhætt- irnir séu yfir höfuð að tala ekki saman- berandi.« í ýmsum þýzkum bindindisblöðum hefir bannlaganna verið getið og upp- lýsinga hafa menn leitað hér um þau t. d. dr. Kraut i Hamborg, sem er ritstjóri nýja blaðsins »Der Vortrupp«, sem áður hefir verið lýst hér í blaðinu. Um nýjárið fékk ráðherra íslands samfagnaðarskeyti frá landsþingi bind- indismanna í Noregi út af því að bann- lögin væru í gildi gengin. Skeytið var undirritað af Stór-Templar í Stórstúku Noregs, br. Arne Halgjem. »Reformatorn« 4. f. m. getur þess, að íslandi liafi verið óskað til liamingju með bannlögin. Þar segir svo: »Til ráðherra íslands, Kristjáns Jóns- sonar í Reykjavík, hefir verið sent eftir- farandi skeyti: Heil hamingjuósk út af því að áfeng- isbannið er gengið í gildi, frá Fulltrúasamkoinu sænsku bindindis- félaganna. Oskar Eklund. Alexis Björkman.« Eklund er einn af helztu fulltrúum Stokkhólms í efri málstofu sænska rík- isþingsins. í Bandaríkjunum og Kanada er ísland lofað fyrir dugnað sinn í þessu máli og allir endurbótavinir bera mikið traust til þess. »Ingólfur« bar nokkra enska viðskifta- rekendur fj'rir því, í haust er leið, að þeir hefðu aumkað íslendinga vegna bannlaganna. En aftur á móti höfum vér það eftir áreiðanlegum heimildum, að menn alment fagni yfir þeirri ráð- stöfun, en hafi um leið látið í ljósi undrun sína yfir því að ísland hafi ráð á að flytja inn áfengi fyrir margar milj. kr., en sé í stökustu vandræðum að byggja sér ofurlítið hafnarkríli. Yínpólitik Frakka. Henni mótmælt af frönsknm manni. Á alþjóðaþinginu í Haag, í liaust er leið, hélt Hayem, lögmaður, frá París, fyrirlestur um þær hagfræðisskoðanir, sem sérstaklega koma í ljós í vinfram- leiðslulöndum, þegar um takmarkanir á vín- og áfengissölu er að ræða. Hann hélt því fram, að framleiðsla áfengisdrykkja sé alls ekki bezta tekju- lindin eins lands. Oft mishepnast vín- uppskeran og í öðru lagi liefir áfengis- nautnin svo feiknarleg útgjöld í för með sér fyrir almenning, sem afleiðing af allri þeirri ejrmd, sem af drykkjuskapnum leiðir. Þau ríki, sem vilja varðveita lieilbrigði manna, ættu að setja í verzlunarsamn- inga sína ákvæði um bann gegn áfengis- drykkjum og í staðinn greiða fyrir inn- flutningi á niðursoðnum ávöxtum og ó-

x

Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Templar
https://timarit.is/publication/532

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.