Templar - 25.07.1912, Síða 1

Templar - 25.07.1912, Síða 1
TEMPLAR. XXV. Reyjavík, 25 . júlí 1912. II. blað. Myndasafn „Templars‘k. Br. Þorsteinn iónsson, Grund á Akranesi, er maöurinn, sem »Templar« leyfir sér aö sýna lesendum sínum að pessu sinni. Br. Þorsteinn Jónsson heíir um mörg ár verið með- limur stúkunnar »Akurblómið« nr. 3 á Akranesi og mikið hefir hann starfað par, bæði innan stúku og utan; hann hefir um mörg ár verið Umboðsmaður Stór-Templars og einnig gegnt ýmsum öðrum störfum í stúkunni. Hann mætti sem f'ulltrúi stúkunnar á stórstúkupinginu á Akureyri 1907 og tók pá stór- stúkustig. Hástúkustig tók hann í júní 1909 er hann mætti á stórstúkupingi hér í Reykjavík. Br. Rorsteinn er fjörmaður og skemtinn, glaðlyndur og góð- viljaður, trjrggur vinur og styrktarmaðnr alls, sem gott er og parft. Hver sú stefna, sem hann hefir léð fylgi sitt, á í hon- um sterkan fylgismann og duglegan, ópreytandi hrautrj'ðjanda. Hann er greindur vel og skáldmæltur, eru mörg góð kvæði til eftir hann. Heimili hans er eitt hið snotrasta og ber vott um ráðdeild og Iramúrskarandi umgengni, enda er kona hans viðurkend mesta dugnaðar og sómakona og tekur hún með lifandi áhuga pátt í öll- um viðfangsefnum hans. Br. Porsteinn var um nokkur ár hreppsnefndaroddviti og gegndi hann pví starfi með dugnaði og fyrirhyggju. Hann er fæddur 4. júní 1857. Þorsteinn Jónsson. Stefnuskrá Good-Templara. I. Algerð afneitun allra áfengisvökva til drykkjar. II.Ekkert leyfi í neinni mynd, hversu sem á stendur, til að selja áfengisvökva tildrykkjar. III. Skýlaust forboð gegn tilbúningi, innflutningi og sölu áfengisvökva til drykkjar; forboð samkvæmt vilja þióðarinnar framkomnum í réttu lagaformi, að viðlögðum þeim refsing- um, sem svo óheyrilegur glæpur verðskuldar. IV. Sköpun heilsusamlegs almenningsálits á máli þessu, með ötulli útbreiðslu sannleikans á alla þá vegu, sem mentun og mannást eru kunnii. V. Kosinng góðra og ráðvandra manna til að framfylgja lögunum. VI. Staðfastar tilraunir til að írelsa einstaklinga og bygðarfélög frá þessari voðalegu bölvun, þrátt fyrir allskonar mótspyrnur og örðug- leika, þar til vér höfum borið sigur úr být- um um allan heim. Ný atkvæðagreiðsla um bannlögin. Lcir, Guðjón Guðlaugsson, þm. Stranda- manna, Pórarinn Jónsson, 2. þm. Húnv. og Stefán Stefánsson, 4. kgk. þm. hafa borið upp í efri deild alþingis eftirfar- andi tillögu til þingsályktunar: »Alþingi ályktar að skora á stjórnar- ráðið, að láta fara fram leynilega at- kvæðagreiðslu allra Alþingiskjósenda á landinu um það, hvorl nema skuli úr gildi lög nr. 44, 30. júlí 1909, um að- ilutningsbann á áfengi. Atkvæðagreiðsla þessi fari fram i sveitum á næstu haust- hreppskilaþingum, en í kaupstöðum 1. vetrardag næstkomandi«. Við atkvæðagreiðslu um bannlögin er í sjálfu sér ekkert að athuga, ef hún er framkvæmd þegar eitthvert vil er í því. T*að er ekkert vit í því að fara fram á atkvæðagreiðslu fyrri en bannlögin hafa fengið ákveðna reynslu, ekki fyrri en þau hafa staðið um nokkurra ára bil. Það er móðgun við kjósendur að spyrja þá um afnám Iaga, sem ekki er fengin reynsla fyrir, einkum þegar þeir liafa krafist þess með atkvæðagreiðslu að fá slik lög. Þetta er tilraun til að brennimerkja þjóðina í augum erlendra þjóða ; henni sé í engu að trúa; hún samþykki eitt í dag og rífi það svo niður á morgun. Vér trúum því ekki, að andbanning- arnir, sem halda því fram, að lögin felli sig sjálf, þegar þau eru komin til fullra framkvæmda, og þá muni þjóðin ein- róma lieimta þau afnumin, skuli ekki vilja l)íða eftir svo góðu tækifæri. Eigi að síður virðist skína í gegnum þesáa tillögu hræðsla um að lögin muni reynast vel og þjóðin muni ekki fást til að afnema þau, þegar hún er farin að sjá hinar lieilladrjúgu alleiðingar þeirra. Það var viðurkent á síðasta þingi, að konurnar ættu að fá kosningarrétt. En þeir herrar, tillögumenn, hafa ekki álitið neitt réttlæti í því fólgið að laka tillit til þess. Það virðist sjálfsagt, að þær ættu ekki siður að hafa úrskurðarvald um þelta mál en karlmennirnir, því ekki verða þær síður varar við afleiðingar á- fengisófagnaðarins en þeir. Er vonandi að konurnar lieimti að þær verði teknar til greiua í þessari lil- lögu. Að öðru leyti er það áreiðanlegt, að þettað er ekki leiðin lil þess að binda enda á baráttuna andbanningunum í hag. L.ög'gæzlan og bannið. Andbanningarnir hafa haldið því fram, áður en bannlögin gengu í gildi og einnig síðan, að þau yrðu brotin og liafa þeir fundið þeim það meðal annars til foráltu. Það má segja, að lílið mark sé á þvi að taka, hvernig lögin hafi reynst þann stutta tíma, sem þau hafa verið í gildi undir þeim takmörkuðu kringumstæðum sem nú eru þau, þegar sala áfengis og ílulningur í landinu er leyft. Að sjálfsögðu liggur næst sú spurning: Hvernig eru lögin framkvæmd af liálfu lögreglunnar? Áður en maður víkur að því alriði, ber að athuga, hvernig framkoma lands- stjórnarinnar hafi verið þegar í byrjun gagnvart framkvæmd laganna. Það er kunnugt, að landsstjórnin liefir gert ýmsar undanþágur frá lögunum. Ein þeirra heíir verið gerð að umtals- eíni í blöðunum og er það álil sumra manna, að þar liafi verið farið feti fram- ar en lögin lieimila. Það er um vín- birgðirnar, sem Frökkum liafi verið leyft að geyma hér á höfninni lianda fiski- skipum sinum. Gerði .lón Ólafsson veð- ur út af þessu í blaðinu »Reykjavík« og taldi það brot á lögunum. Ráðherrann sendi öllum sýslumönn- um á landinu bréf um bannlögin, dags. 2. des. f. á. (birt í B-deild stjórnartíð- indanna 1911, 30. desbr.). Þar segir svo: »Þar sem svo er í 5. gr. ákveðið meðal annars, að skipstjóri megi ekki »veita« öðruin en skipverjum áfengi, þá má ekki skilja þetta svo, að skipstjóri inegi ekki hafa gesti í boði, og veita þeim jafn- framt áfengi, meðan að hver sem vill getur fengið áfengi í landi«. Margir líta svo á, að þetla sé beint brot á hinni tilvitnuðu 5. grein laganna og að stjórnin liafi enga heimild haft til þess að gera þessa undanþágu, sem að öðru leyti virðist gersamlega tilefnislaus og þarllaus. Þá eru lögreglusljórarnir. Eins og öllum landslýð er vitanlegt, eru allir lögreglustjórar landsins, að nokkrum heiðarlegum undantekningum, andstæðir bannlögunum. Sumir láta þau afskiftalaus, þegar bezt lætur, en aðrir gera alt, sem þeim er unt, til þess að fá þau afnumin. Það er ekki að búast við því að þeim hinum sömu leiki sér- staklega hugur á því að halda lögunum í heiðri og vernda þau, enda vitum vér það með vissu, að þar sem svo er á- statt, er ekkert hugsað um að líta eftir skipum og innsigla áfengisbirgðir, er þau kynnu að hafa meðferðis. Að þessu sinni ætlum vér ekki að nefna nein nöfn, en álítum sjálfsagt, að þeir lögreglustjór- ar, sem verða þess varir, að ekkert liefir verið athugað á þeim liöfnum, sem skip- in hafa komið við á áður en þau koinu til þeirra, að þeir lilkynni það stjórnar- ráðinu, svo hlutaðeigandi embættismenn fái aðvörun. Aftur á móti vitum vér, að laganna er vel gætt í Reykjavík og hefir lögreglu- stjórinn þar ágætan mann fyrir sína hönd til þess, og ber að geta þess að

x

Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.