Templar - 30.09.1912, Blaðsíða 1
TEMPLAR.
XXV.
Reyjavík, 30. sept. 1912.
14. blað.
Myndasafn „Templars‘k.
Br. sira Friðrik Friðriksson, forstöðum. K.F.U.M. á íslandi, var
stotnandi þess félags hór og unnið með því ómetanlegt gagn
þjóöJelagi voru og kirkju. Ilann hefir verið meðlimur Regl-
unnar síðan 7. sept. 1897; og verið lengst al í st. »Verðandi«
nr. 9 og hefir tekið umd.stúku- og stórssúkustig. Hann var
Gæ/.lum. Ung-Templara eitt kjörbil og liefir oft stutt unglinga-
slúkur hér við j"ms tækitæri, þvi barnavinur er hann niikill.
Mikinn áhuga hefir hann á bindindi og liefir sérstaklega unn-
ið að því meðal sjómanna; gaí eitt sinn út flugrit í því skj’ni
og hlaut verðlaun fyrir; hefir það verið gefið út á erlendum
tungum og í Danmörku var það prentað í 100,000 eintökum.
Hann hefir tvisvar haldið ræður við stórstúkuþingssetningu:
í Reykjavíkurdómkirkju 1903 og í Vestdalseyrarkirkju 1911.
Hann hefir mikið unnið að bindindi i sambandi við K.F.U.M. og stofnað þar bindindislélag.
Áhugi hans er mikill og bera ræður hans beztan vottinn um það.— Hann er góðviljaður
og hjálpfús og má ekkert aumt sjá. — Hann er lærdómsmaður mikill og er líklega lærðasl-
ur allra íslendinga, sem nú eru uppi, á latneska tungu. Hann er skáld gott og eru erfiljóð
lians víða kunn; þess utan hefir hann gert margt bæði í bundnu og óbundnu máli. Br. sira
Friðrik er hinn nýtasti maður og allir, sem kynnast honum, virða liann og elska, sem læri-
föður og fvrirrennara i öllu góðu og göfugu. Hann er fæddur 25. maí 1868.
Stefnuskrá Good-Templara.
I. Algerð afneitun alira áfengisvökva til drykkjar.
II. Ekkert leyfi í neinni mynd, hversu sem á
stendur, til að selja áfengisvökva til drykkjar.
'III. Skýlaust forboð gegn tilbúningi, innflutningi
og sölu áfengisvökva til drykkjar; forboð
samkvæmt vilja þjóðarinnar framkomnum í
réttu lagaformi, að viðlögðum þeim refsing-
um, sem svo óheyrilegur glæpur verðskuldar.
JV. Sköpun heilsusamlegs almenningsálits á máli
þessu, með ötulli útbreiðslu sannleikans á
alla þá vegu, sem mentun og mannást eru
kunnir.
V. Kosinng góðra og ráðvandra manna til að
framfylgja lögunum.
VI. Staðfastar tilraunir til að írelsa einstaklinga
og bygðarfélög frá þessari voðalegu bölvun,
þrátt fyrir allskonar mótspyrnur og örðug-
leika, þar til vér höfum borið sigur úr být-
um um allan heim.
Vetrarstörfin.
Þegar liausta tekur og félagar stúkn-
anna eru komnir heim frá sumarönnun-
um, fer að færast líf í fundina og fé-
lagsstörfin fara að gagntaka liugi manna.
Þá verður mörgum fyrst á að renna
liuganum yfir hvað helzt skuli gera.
Menn sjá, að enn þá er drykkjuskap-
ur nægur í landi og er þar afieiðandi
fjöldi manna, sem eyða fé sínu og heilsu
og hirða ekki um heimilisskyldurnar
og ungir menn ana í stórhópum út í
foræðið fyrir fortölur ills félagskapar og
eggjanir andbanninga.
Enginn Templar getur látið slíkt með
öllu afskiftalaust.
Félagarnir verða því að reyna að liafa
áhrif á þessa menn og fá þá til að víkja
inn á aðrar brautir. Bezl er að stúk-
urnar tilnefni þá meðal félaga sinna,
sem færir eru til þess eða líklegir kunn-
ingsskapar vegna eða annara ástæðna,
til að liafa áhrif á þessa menn. Á þenn-
an háll skapar stúkan sér samhygð
J>eirra, sem annars mundu standa alveg
óvilhallir gagnvart henni eða jafnvel
andstæðir.
Vér verðum að hafa stöðug áhrif á
mannfélagið og til þess verður stúkan
að gera ýmsar ráðstafanir. Hún þarf
að lialda útbreiðslufundi eða opna fundi
að minsta kosti tvisvar þrisvar á vetri
og bjóða þangað þeim, sem hún álítur
að eitthvert gagn hefðu af því. Fundi
þessa þarf að undirbúa vel og rækilega.
Á þessum fundum þarf, auk hinna al-
varlegu mála, að hafa nokkuð til skemt-
unar, svo sem söng, hljóðfæraslátt, upp-
lestra á bundnu og óbundnu ináli o. 11.
Lá þarf að hafa eina ræðu um á-
lirif áfengis á líkama mannsins. Til
leiðbeiningar má benda á bókina »Um
áfengisnautn« eftir br. Guðmund Björns-
son, »Um áfengi«, ágrip af doktórs-rit-
gerð br. Matli Helenius’s í Helsingfors,
sem Sáluhjálparlierinn gaf út 1908 og
»Um áfengi til almennrar nautnar« sem
nú er að koma út í »Templar«. Þeir,
sem eilthvað hefðu kynt sér vísindahlið
áfengisbölsins, ættu að halda ræðu um
einhver atriði í þessari grein, til þess
að fræða menn um þessa hlið áfengis-
málsins. Þetta er alveg nauðsynlegt,
því án áfengisfrœðslunnai' er bannið ekki
trygt og áfengis/rœðslan kemur ekki að
lialdi meðan áfengið er á boðstólum. Þar
sem því verður við komið, ætti einnig
að skýra áfengismálið frá hagfræðilegu
og þjóðfræðilegu sjónarmiði. Menn segja
að ekkert útbreiðslustarf þurfi lengur,
en rneðan þelta er ógert, er alveg óhætt
að þegja um það. Að úlbreiða þekking-
una á áfenginu er nægilegt starf fyrir
Regluna hér — ásamt verndun bannlag-
anna — í nokkra mannsaldra.
í vor var bent á ýms atriði í »Tpl.«
viðvíkjandi framtíðarstörfum Reglunnai
og gætu stúkur tekið ýmislegt af því til
athugunar og yíirvegunar í vetur, enda
er ekki ólíklegt að eitthvað af því komi
fram i ákveðnu formi á næsta stórstúku-
þingi og verði þar ef til vill ráðið til
lykta og síðan komið í framkvæmd.
Það þarf að hafa sívakandi auga með
framkvæmd bannlaganna, þólt erfill sé
það enn þá, þangað lil lögin eru komin
í full gihli. Stúkurnar ættu að útvega
sér menn, annaðhvort innan eða utan
sinna vebanda, sem væru svo settir, að
þeir gætu int þetta verk af hendi. Auð-
vilað verður því að vera svo hagað, að
það kosti sem minsta fyrirhöfn.
Að öðru leyti vísast til umburðarbiéfs,
sem senl hefir verið öllum stúkum, um
frekari leiðbeiningar í þessu efni og er
þess óskað, að þær taki það til atliug-
unar og færi sér það í nyt.
Andstæðingar vorir beita álirifum sín-
um al’ fremsta megni og þess vegna verða
allir að vinna með dugnaði á inóti þeim,
svo þeir fái engu um þokað.
Bannflokkurinn
í Bandaríkjunuin lieldur þing og
mælir með forsetaefnum og semur
kosningastefnuskr«á.
Cliafin og AVatkins.
10. júlí s.l. og næstu daga hélt Bann-
flokkurinn liið stóra þing sitt í Atlantic
Cily i New Jersey og mættu þar þúsund
fulltrúar frá hinum ýmsu ríkjuin.
Aðalverkefni þingsins var að semja
kosningastefnuskrá sína og mæla með
forsetaefnum fyrir næslu forsetakosn-
ingar.
Iv o s n i n g a s t e f n u s k r á i n
er í aðalatriðunum svo hljóðandi:
1. Bann gegn sölu og tilbúningi á-
fengra drykkja.
2. Iíosningarrétt til handa konum
með sömu kjörum og karlmönnum.
3. Sams konar hjónabands- og lijóna-
skilnaðarlög fyrir öll ríkin; útrýming
fleirkvænis og hvítu »þrælaverzlunar-
innar«.
4. Ákveðin verndun vinnunnar án
þess að ráðast á rétt auðmagnsins(?).
5. Alþjóða-ágreiningsmálum sé ráðið
til lykta með gerðardómi.
6. Bann gegn því að hörn séu látin
vinna í námum, á verksmiðjum og
vinnustofum.
7. Einföld kosning sambandsþings-
manna.
8. Forsetinn sé lcosinn til 6 ára, en
ekki endurkosinn.
9. Endurbætur á bankafyrirkomu-
laginu.
10. Frumkvæði (borgaranna í löggjöf)
viðurkent og alkvæðagreiðsla.