Templar - 10.10.1912, Qupperneq 1

Templar - 10.10.1912, Qupperneq 1
TEMPLAR. XXV. Reyjavík, 10. okt. 1912. 15. blað. Myndasafn „Templars“. Br. Hjörleifur heit. Hákonarson á Eyrarbakka varö tyrst stofnandi bindindisfélags þar, er hét »Bræörafélagiö« 4. okt. 1885. í þessu félagi vann hann ineð drengskap og dáð og var um lengri tíma formaður þess. Félagið starfaði í 10 ár og varð það að sam- komulagi að það sameinaðist st. »Eyrarrósin« nr. 7 24. nóv. 1895 og gerði stúkan hann að heiðursfélaga. Ilann tók umd.stúkustig undir eins og hann l'ékk rétt til þess. Hann gegndi ýmsum störf- um í stúkunni með mestu reglu og samvizkusemi og siðustu ár æfi sinnar var hann Umboðsm. Stór-Templars. Hann var fæddur 6. okt. 18(52 og andaðist að heimili sínu, Litiu-Háeyri, 14. febr. 1910. Um hann er sagt i bréfi frá kunnugum: »Bindindismálið var i sannleika bans hjartans mál til liinstu stundar og margt þarft orðið talaði hann því til stuðnings í hinni löngu banalegu sinni við þá, sem þá heimsóttu liann. Bað má með sanni segja, að bindindismálið misti þar ölulan og góðan starfsmann og er sárt fyrir okkur hér á Eyrarbakka að missa slikan fé- laga sem liann var, því bindindismálið á hér ætíð töluverðum mótbyr að mæta. Hann var góðum gáfum gæddur og áreiðanlegur í öllu«. Blessuð sé minning hans. Stefnuskrá Good-Templara, I. Algerð afneitun allra áfengisvökva til drykkjar. II. Ekkert leyfi í neinni mynd, hversu sem á stendur, til að selja áfengisvökva til drykkjar. JII. Skýlaust forboð gegn tilbúningi, innflutningi og sölu áfengisvökva til drykkjar; forboð samkvæmt vilja þjóðarinnar framkomnum í réttu lagaformi, að’ viðlögðum þeim refsing- um, sem svo óheyrilegur glæpur verðskuldar. IV. Sköpun heilsusamlegs almenningsálits á máli þessu, með ötulli útbreiðslu sannleikans á alla þá vegu, sem mentun og mannást eru kunnir. V. Kosinng góðra og ’ráðvandra manna til að framfylgja lögunum. VI. Staðfastar tilraunir til að frelsa einstaklinga og bygðarfélög frá þessari voðalegu bölvun, þrátt fyrir allskonar mótspyrnur og örðug- leika, þar til vér höfum borið sigur úr být- um um allan heim. Einasta ráðið. Þeir hafa reynt nokkrar leiðirnar, and- banningarnir, síðan þeir hófu baráttu sína gegn bannlögunum, en skrykkjótt hefir þeim gengið að feta þær, sem von er til. Leir notuðu fyrst það vopnið, sem næst lá tilíinninga- og nautnarlífi þeirra; það var persónu/relsið. Lengi var það látið klingja og mikið kapp hafa þeir lagl á að telja mönnum trú um að bannlögin sé einu lögin er ráðist á persónufrelsið. En allir skyn- bærir menn sáu að það var bábyljan einber; þeir sáu að öll löggjöf er brot á frelsi einstaklingsins og þess vegna fékk þetta óp þeirra svo litla áheyrn hjá mönnum. Menn vildu ekki láta at hendi líf og heilsu fyrir frelsið til að drekka. Menn sáu, að það var rangt hugsað og þess vegna hefir þeim unnist svo Htið á í þessu efni, andbanningun- um. Nú er svo komið, að engum dettur í hug að halda þessari staðhæíingu fram i alvöru. Þetta vopn ei því orðið bitlaust í höndum þeirra. Fjárhagsvoðinn, sem landssjóður var kominn í, var eitt atriðið. Þótt undar- legt mætti virðast, þá gleyptu margir þessa llugu. En menn sáu við nánari athugun, að þetta var rangt, því aðflutn- ingsbannið hefir ekki og er ekki enn þá farið að liafa áhrif á búskap Iandssjóðs- ins. Þessi staðhæfmgin er því orðin harla liðlétt vopn í höndum þeirra. Það er þj'ðingarlaust að tala um það. Þá er á/engistollurinn. Jú, það kemur skarð í landssjóðinn og það var líka ó- spart notað og sagt, að landið færi á höfuðið og alt væri ómögulegt án vín- fangatollsins. Nú hefir þingið samþykt lög, sem ætla landssjóði meiri tekjur en það sem á- fengislollinum nemur. >feð því verður skarðið fylt og þá er sú ástæðan úr sög- unni. Menn eru lika hættir að minnast á hana, nema þeir allra æstuslu, eins og G. E. í »Ingólfi« 17. sept. þ. á. Og færir hann þar ekkert annað fram en rangfærslur eftir peningamálanefndar- meirihlutanum, sem svo rækilega var lirakið í 11. tbl. »Tpl.« þ. á. Nú er það vopnið líka orðið málllausl í liöndum þeirra. Er þá ekkert eftir, sem þeir liafa á takteinum þegar þessi atriðin, sem nú voru nefnd, eru ekki lengur nothæf? Jú. Ein leið er eftir. Að hrjóta bannlögin. Enginn eii er á því, að þessi leið verð- ur farin af þeim herrum, enda hefir einn merkur maður í þeirra hóp sagt það í margra manna viðurvist, að hann álíti það heilaga skgldu hvers manns að brjóta lögin. Sá, sem þelta sagði, er mikils metinn lögfræðingur og á að liafa næga þekkingu á því livað það er að bera virðingu fyrir rétti þjóðarinnar til að selja sér lög. Það virðist fremur óvið- eigandi, að slíkur maður skuli lála sér þvílíkt til hugar lcoma, hvað þá heldur að láta sér það um munn fara í margra manna áheyrn. En það er sönnun þess að þeir hafa hug á að fara þessa leið, hvað sem það kostar. Öllum er kunnugt um það, að í and- banningaflokknum eru mestmegnis em- bættismenn, stúdentar og kaupmenn, sem hafa meiri eða minni hag af áfeng- isverzluninni. Sem betur fer, eru þó ekki allir þess- ara stétla menn í flokknum; frá því eru góðar og lieiðarlegar undantekningar. Þetta eru þá mennirnir, sem vilja reyna að eyðileggja bannlögin á þann hátt að brjóta þau. Virðingarverð stefna eða bitt þó heldur. Það hefir þótt hart,j hafi eitthvert smámennið lálið það á séri slcilja, að þessi ílokkur manna væri átu- mein i þjóðlífi vor-u. En gæti maður betur að, er þetta og því lík dæmi sönn- un þess, að þeir rnenn hafa mikið til sins máls, er halda þessari skoðun fram. Einliver Argos skrifar í »Ingólf« 24. f. m. um klúbbalögin (sumir segja að Magnús dýralæknir sé þessi Argos), og talar þar máli klúbbanna sem bezt hann má. Sýnir sú grein berlega, að and- banningar eru livata- og stuðningsmenn klúbbanna, sem »Tpl.« hefir svo oft benl á, en þeir alt af þrætt fyrir. En grein þessi sýnir einnig það, að þeir vilja halda þessum spillingarbælum við líði, til þess að eiga hægara með að koma fram á- formi sínu, því, sem áður var nefnt, að brjóta bannlögin. Það er því skiljan- legt, að það sé hin mesta nauðsyn fyrir þá að hafa þessar stofnanir alveg óá- reittar af hendi löggjafarvaldsins. Einhverjir hafa og haft það á orði, að það ættu að safnast saman svo sem tvö liundruð manna að minsta kosti til þess að brjóta lögin, í þeirri von að engu lögregluvaldi verði beitt á þeim. Ekki er nú ofstækið smávægilegt hjá þeim, er þeir láta slíkar hugsanir frá sér fara. Höfðingjarnir eru óvanir því hér á voru landi að lúta í lægra haldið fyrir almenningi, en liafa nú samt orðið að gera það í þessu máli og það sárnar þeim, og þess vegna vilja þeir að grípa til þessa eina úrræðis, sem völ er á: að brjóta lögin i eins stórum mæli og þeim er unt. Pað er einasta ráðið. Þeir Templarar, sem ílytja búferlum til Ameríku, ættu að leita hjá mér upplýsinga um þá umboðs- menn, sem Reglan hefir þar til að leiðbeina innflytjandi Templurum og skal ég gefa þeim þær, hvort sem þeir óska munnlega eða skriflega. Skrifstofa Stór-Ritara, 30. sept. 1912. Jón Árnason.

x

Templar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.