Templar - 08.07.1918, Side 1

Templar - 08.07.1918, Side 1
TEMPLAR. XXXI. Reykjavik, 8. júlí 1918. 6. blað. Stefnuskrá Good-Templartt. 1. Algerð afneitun allra áfengisvökva til drykkjar. II.Ekkert leyfi t neinni mynd, hversu sem á stendur, til að selja áfengisvökva tildrykkjar. III. Skýlaust forboð gegn tilbúningi, innflutningi og sölu áfengisvökva til drykkjar; forboð samkvæmt vilja þjóðarinnar framkomnum í réttu lagaformi, að viðlögðum þeim reísing- um, sem svo óheyrilegur glæpur verðskuldar. IV. Sköpun heilsusamlegs almenningsálits á rnáli þessu, með ötulli útbreiðslu sannleikans á alla þá vegu, sem mentun og mannást eru kunnir. V. Kosinng góðra og ráðvandra manua til að framfylgja lögunum. VI. Staðfastar tilraunir til að írelsa einstaklinga og bygðarfélög frá þessari voðalegu bölvun, þrátt fyrir allskonar mótspyrnur og örðug- leika, þar til vér höfum borið sigur Úr být- nm um allan heim. Bannlög- Bandaríkj anna. Arizona samþykti stjórnlagabreytinguna 23. maí síðastl. Efri málstofa þingsins samþykti hana með öllum atkv. og neðri málstofan með 29 atkv. gegn 3. Suður Dakota samþykti lögin (sbr. síðasta blað) í neðri mál- stofunni með 86 atkv. gegn engu og í efri málstofunni með 43 atkv. gegn engu. í Massachusetts voru lögin samþykt með 145 atkvæðum gegn 91 í neðri málstofunni og í efri málstofunni með 27 atkvæðum gegn 12. Fregnin er eftir »The American Issue« frá 1. f. mán. Andbanninga- ósannindin. Þeir hafa, andbanningarnir, statt og stöðugt, í ræðu og riti, reynt að telja mönnum trú um, að áfengisbannlög hafi hvergi komið að gagni þar sem þau hafa verið reynd og þeir hafa jafnvel haldið því fram, að bannlög hafi ekki gilt þar sem þeim hefur verið komið á, og þeir hafa jafnvel endurtekið þær staðhæfingar sínar, enda þótt þær hafi jafnharðan verið kveðnar niður af bann- vinum. Vér viljum leyfa oss í þessu sambandi að benda á nokkur dæmi af mörgum: Þegar bannatkvæðagreiðslan fór fram í ríkinu Main i Bandaríkjunum hérna um árið, þá ílutti »Templar« þá fregn, að bannið hefði verið endursamþykt með 600 atkvæða meiri hluta. Andbann- ingar hér héldu því stöðugt fram og gera ef til vill enn, að það hafi verið ósatt. Reyndar hefur engum sæmilega sannleikselskandi manni dottið í hug að vefengja fregn »Templars« í því máli, enda er það fyrir löngu lýðum ljóst, að hún var sannleikanum samkvæm. Þeir héldu því einnig fram, að bann- lögin á Færeyjum hefðu aldrei komið að gagni og hefðu jafnvel verið afnum- in, en reynslan hefur nú sýnt það svo berlega, hve gersamlega röng sú stað- bæfing þeirra var. Lögin í Færeyjum hafa staðið um 10 ára skeið og gert ó- metanlegt gagn. Mun »Templar« innan skamms fá tækifæri til að sanna það með ábyggilegum tölum, sem ekki stoð- ar móti að mæla. Þá hafa andbanningarnir oft og lítt látið það klingja, að bannið í Banda- ríkjunum hafi ekki komið að gagni og eins mikið, eða jafnvel meira hafi verið drukkið i bannrikjunum en í vínsölu- ríkjunum. Það nær auðvitað ekki nokk- urri átt, að eins mikið hafi verið drukk- ið í bannríkjunum og þar sein áfengið var selt, enda bera skýrslur bruggaranna í Bandaríkjunum þess Ijóst vitni, hve lítið er drukkið í bannríkjunum. Eftirtektaverð er atkvæðagreiðslan í löggjafarþingum þeirra ríkja, sem nú þegar hafa samþykt stjórnlagabreytingu þá, sem er á ferðinni í Bandaríkjunum og »Templar« hefur flutt fregnir af í síðustu blöðum. Hún sýnir, hver geysi- legur munur er á atkvæðum með og móti í bannríkjunum og vínsöluríkjun- um. í vínsöluríkjunum eru hér um bil 2/'a hlutar þingmanna, sem greiða atkv., en í sumuin bannríkjunum eru lögin samþykt nærfelt í einu hljóði, eins og t. d. í Montana; þar samþykti neðri inálstofan lögin með 86 atkv. gegn 7, og í efri málstofunni með 37 atkv. gegn 2. Þetta sýnir ljóslega, hvert álit bannið hafi hlotið meðal almennings í þessum ríkjum og er bein mótmæli gegn stað- hæfingum þeim, sem andbanningar bera á borð fyrir menn hér viðvíkjandi bann- inu í Bandarikjunum og framkvæmd þess. Stórstúkuþingið. Eins og áður hefur verið getið um bér í blaðinu, þá kom stórstúkuþingið saman laugardaginn 8. f. m. og hófst kl. 12 á hád. með guðsþjónustu í dóm- kirkjunni. Fulltrúar og embættismenn Stórstúkunnar og aðrir viðstaddir félag- ar hennar mættu í Good-Templarahús- inu, sem var fagurlega skreytt við þetta tækifæri og gengu þaðan í kirkjuna. Síra Magnús Jónsson dósent prédikaði. Var það einhver hin snjallasta ræða, sem flutt hefur verið af prédikunarstóli uin þetta efni. Hún birtist í »Lögréttu« 19. f. m. Að guðsþjónustunni lokinni gengu menn aftur í Good-Templarahúsið og var þá stórstúkuþingið — hið 18. í röð- inni — sett af Stór-Templar Pétri Hall- dórssyni. Á þinginu mæltu nálega allir embætt- ismenn Stórstúkunnar og 23 fulltrúar: Frá st. »Bára« nr. 2 í Vestmannaeyjum: Jes A. Gíslason. — — »Akurblóm« nr. 3 á Akranesi: Gísli Hinriksson. — — »Daníelsker« nr. 4 í Hafnarfirði: Sveinn Auðunsson. — — »Verðandi« nr. 9 í Reykjavík: Sveinn Jónsson, Pétur Halldórsson og Þórður Bjarnason. — — »Morgunstjarnan« nr. 11 í Hf.: Jensíua Árnadóttir. — — »Einingin« nr. 14 í Reykjavík: Borgþór Jósefsson og Jóhann Kristjánsson. — — »Nanna« nr. 52 á ísafirði: Helgi Sveinsson. — — »Dagsbrún« nr. 67 á ísafirði: Ólína Þorsteinsdóttir. — — »Vikingur« nr. 104 í Reykjavík: Ottó N. Þorláksson. — — »ísfirðingur« nr. 116 á ísafirði: síra Guðm. Guðmundsson. — — »Skjaldbreið« nr. 117 í Rvík: Felix Guðmundsson og Guðgeir Jónsson. — — »Gyða« nr. 120 á Núpi i Dýraf.: Torfi Hermannsson. — — »Ársól« nr. 136 í Rvik: Sigriður Þorsteinsdóttir. — — »Mínerva« nr. 172 í Rvik: Árni Sigurðsson. — — »Framtíðin« nr. 173 í Rvík: Guðm. Gamalíelsson og Sigurjón Jónsson. — Umdæmisstúkunni nr. 1: Pétur Zóphóníasson, Páll Jónsson og Flosi Sigurðsson. 26 félögum Reglunnar var veitt stór- stúkustig. Eins og venja er til, lögðu embætt-

x

Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.