Templar - 20.08.1923, Side 10
8
Fylgirit Templars 1923
þessara áhalda. — Hálfa fimtu stundu sátum
vér undir borðum, en mér fanst eg vart
vera saddari þá er upp var staðið heldur en
þá er veislan hófst.
Að heyra Bryan tala er langtum áhrifa-
meira. Maður gleymir öllu, gleymir þessum
heimi, en flytst í annan betri, þar sem ekki
er hugsað um mat eða því um likt. Og þó
Bryan tali oft i 2 klukkustundir finst engum
sá tími langur.
— Þó Ameríkumenn hafi slika snillinga til
að flytja bindindis- og bannmálið, þá segi eg
samt: Ræðumennirnir hafa ekki »þurlagt
landið«, þeir hafa hjálpað til. En hversu vel
sem þeir töluðu, fóru sumir áheyrandanna
oft til vindrykkju á eftir.
Þá álita margir að bindindisfélögin hafi
komið á banninu i Bandaríkjunum. Þau hafa
vitanlega gert nokkuð til þess, en eg hika
ekki við að staðhæfa, að þau hafa ekki verið
aðalkrafturinn i þessari stórkostlegu siðbót.
Yitskerti maðurinn og vatnskraninn.
Á mörgum geðveikrahælum í Ameríku er
sá siður við hafður, að þegar sjúklingurinn
hefir verið á spítala um nokkurn tíma, og