Templar - 20.08.1923, Blaðsíða 25
Fylgirit Templars 1993
23
eru allir í Ameríku. Og eg heiti Magnusson.
Munið eftir því«.
»Já, það vil eg leitast við að gera, en þá
verðið þér að gefa mér heimilsföng þeirra«,
sagði eg.
»Nei, það get eg ekki«, sagði hann. »En
þér hittið þá, því að þeir eru þar allir sjö«,
sagði maðurinn.
— — Nú, það er alls ekki víst, að eg finni
hina sjö drengi Magnussons, enda þótt eg fari
um Ameríku til dauðadags, því að landið er
svo afarstórt og fólksfjöldinn svo mikill. Eg
set þetta hér til þess að sýna hve mjög hug-
myndir manna um stærð og fólksfjölda Banda-
ríkjanna eru fjarri réttu lagi.
Þess ber að geta, að bannið hepnast ekki
allstaðar jafnvel, vegna þess, að mörg fylkin
hafa að eins haft það fáein ár, meðan það
hefir verið í gildi í mörg ár í öðrum.
Reglan er sú, að bannið hefir hepnast best
í þeim fylkjum, sem hafa haft það lengst.
Fyrri part ársins 1919, áður en bannið
gekk í gildi um öll Bandaríkin, höfðu 28
fylki haft lengri eða skemri reynslu af því.
Þá var sérstök nefnd sett, til þess að rann-
saka hjá þessum fylkjum, hvernig þeim