Templar - 20.08.1923, Qupperneq 36
34
Fylgirit Tcmplars 1925
hvaða sjúkdómi reseptið hafi verið gefið, og
það varðar jafnvel embættismissi ef læknar
brjóta lög í þessu efni. Yfir höfuð má segja,
að læknar yfirleitt hlýðnist lögunum. Hin
bezta sönnun þess er það, að bannféndur
Ameríku láta það mál kyrt liggja; gætu þeir
notað afstöðu læknanna til að ófrægja bann-
lögin, mundu þeir hiklaust gera það.
Niðnrstaðan,
sem eg kemst að, eftir ýtarlega og nákvæma
rannsókn sem gerð hefir verið á bannástand-
inu í U. S. A., verður sú, að bannið hefir
þegar verið til óumræðilega mikils gagns, að
framkvæmd bannsins í sumum fylkjum er enn
ábótavant, en að alstaðar hefir það reynst
betra að hafa bann en lögleyfða vínsölu.
Eg geri því orð prófessors Torsteins Thun-
bergs að mínum, er hann, eftir að hafa verið
sendur til Bandaríkja af stjórn Svíaríkis til
þess að kynna sér bannið og afleiðingar þess,
kemst þannig að orði:
»Bannið stendur stöðugt, af þeirri ástæðu,
að það hefir sýnt sig að vera til mikils gagns,
bæði socialt og í fjárhagslegu tilliticc.
»IJað verður að skoða sem ómótmælanlegt,
að bannið hefir ákaflega mikið minkað mögu-
leikana að ná í áfengi og þar með líka nautn
þess«.