Templar - 09.10.1923, Blaðsíða 4

Templar - 09.10.1923, Blaðsíða 4
48 TEMPLAR. Templarabálkur. Framboð. Br. Felix Guðmundsson verk- stjóri býður sig fram í Gullbringu- og Kjós- arsýslu. Skjaldbreið nr. 117 hélt ágætan fund 28. f. m. Barnastúkurnar »Unnur« og »Díana« heimsóttu og færðu br. Larsen-Ledet og frú hans blóm að gjöf. Frá stúkunni »Víkingur« nr. 104 talaði br. Hinrik Ottoson til br. L.-L. L.-L, og frú hans þökkuðu, var ræða hans um Norðurlönd og vinræktarlöndin. Var ræðan, eins og aðrar ræður hans, hin sköru- legasta og gerður að henni góður rómur. Ettir fund settust menn að katfidrykkju og töluðu þa ýmsir. Br. Pétnr Ottesen er sjálfkjörinn alþingis- maður fyrir Borgarljarðarsýslu. Mótílokks- menn hans treystust ekki að etja neinurn fram á móti honum, svo er álit og vin- sældir P. O. rótgróið. Benedikt Sveinsson varð og sjálfkjörinn i Norður-Pingeyarsýslu. Br. Larsen-Ledet, frú hans og börn fóru heim til Danmerkur meó íslandi 2. þ. m. Br. L.-L. hélt 4 opinbera fyririestra hér í Reykjavík, og má óhætt segja, að þeir þóttu allir hver öðrum skemtilegri og hver öðrum betrí. Auk þess flutti hann fyrirlestra um bannmálið i Grindavík, Garði, Keflavik og Hatnarfirði og má hið sama um þá segja. L.-L. er óvenjulega snjall ræðumaður, hefir ágætt máifæri og ágætar áherslur, og ekki heyrist eða finst nein þreyta hjá honum þótt hann tali i lengri tima. Hann og fóik hans fór til Pingvalla og í Skeiðaréttir. Munu fáir útlendingar hafa komið í réttir, en þar er eiukennilegt þjóð- lif að sjá. í þessum ferðum breiddi náttúra íslands opin faðm sinn á móti honum, og sólskin og hlýindi hvildu yfir landinu. Pað var auðfundiö að landvættir landsins vissu að hér var góður vinur landsins á ferðinni. Kveidið áður en hann fór, var honum og fjölskyldu hans haldið samsæti á Skjald- breið. Par fluttu ræður, Indriði Einarsson rithöf. fyrir Larsen-Ledet, Pétur Zophónías- son fyrir frú hans og börnum, Einar H. Kvaran ritböí. fyrir Danmörku, Larsen-Ledet fyrir íslandi og David Östiund fyrir L. L. Sama dag og hann kvaddi iandið, athenti P. Z. honum frá íslenzkum bannmönnum gullpenna og guilblýant, og er enginn efi á þvi, að mörg gullvæg orð munu i höndum br. L.-L. falla úr gullpenna þessum á papp- irinn. Templar þakkar þeim hjónum fyrir kom- una, og árnar þeim og Jaörnum þeirra ails hins besta. ~~ Fjórar preutyiliur hefi eg fundið í bækl- ingnum: »Heimsbarattan gegn áfengisbölinu«, og vil eg biðja lesendurna aö leiörétta þær í kveriuu. Pað eru þessar: / 1. A 4. bls. í neðanmalsgreinlnni stendur, að 1 gallon sje sama sem »4'/= liter«. Sá, sem hefir sett neöanmálsgrein þessa í kverið, hefir ekki gætt þess, að tals- verður munur er á ensku og ameriku galloni. Eg hefi átt við amerískt gallon, sem er sama sem 3,785 liter. 2. Á bls. 26 stendur, þar sem talað er um hinar 68 Neal-stofnanir: »þau höfðu jfyr á tímum alls 125,000 drykkjusjúklinga á ári«. Petta er ekki nákvæmt. Pað á að standa: »Pau höfðu á síðuslu 12 árum áður en bannið oar lögleill,~ 125,000 drykkjusjúklinga«. 3. Á bls. 39 stendur sú^herfilega'villa, að í Noregi hafi á árunum 1917—1290 »425,972 persónura hlotið hegningu fyrir drykkju- skap. Par á að standa: 125,972 persónur. 4. Á bls. 41 stendur.sú meinloka, að at- kvæðagreiðslan í Svíþjóð hafi íariðfram »27. ágúst 1932«, en á auövitaö að vera: 27. ágúst 1922. David Ösllund. V. B. K. Réttar vðrur. Rétt verð, Vefnaðaryörur. Pappír, lEtitföng-, Póstkort, íslensk. Id eður, SKSST’ og flestar vörur fyrir söðlasmiði og skósmiði. Vörur sendar gegn póstkrölu um alt Island. Verslunin Björn Kristjánsson. Líftryggingarfél. ,Andvaka‘ u. Kristjaníu, Noregi. t Allar venjulegar líftryggingar, barnatryggingar og lífrentur ISLANDSDEILDIN löggilt af Stjórnarráði Islands í desember 1919. Ábyrgðarskjölln á íslensku! Varnarþing i Reykjavikl iðgjöldin lögö inn i Landsbankann og fslenska sparisjóði. „ANDVAKA“ hefir frjálslegri tryggingarskilyrði og ákvæði en flest önnur líftryggingarfélög. „ANDVAIÍA" setur öllum sömu iðgjöldl (Sjómenn t. d. greiða engin aukagjöld). „ANDVAKAf< gefur út líftryggingar, er eigi geta glatast nje gengið úr gildi. „ANDVAKA“ veitir bindindismönnum sérstök hlunnindi. Forstjóri: Helgi Valtýsson. Pósthólf: 533. Reykjavik. Heima: Grundarstig 15. Sími: 1250. AV. Peir sem panta tryggingar skriflega, sendi forstjóra umsókn, og láti aldurs síns getið! Vigfús Guðbrandsson — klæðskeri. — Sími 470 — Símn,: Vigfús — Aðalstr. 8 Fjölbreytt fataefni. 1. fl. saumastofa Skrifstofa Stórstúku íslands Aðalstræti 18. Er opin alla virka daga kl. 5—7 síðdegis. Yátryggið gegn eldi hjá Eagle, Star & Britísh Dominions London. Umboðsmenn í flesturn kaupstöðum. Aðalumboðsmaður á tslandi Uarðar Wíslason Reykjavík IXafnstimpla ýmsar gerðir. Blek, blekpúða. Ágrafin Innwifjli (signet). Agrafin Dyraspjöld úr sylfri eða liopar útvega jeg mjög ódýrt. Vandaðar vörur Sent gegn póstkröfu um land alt. MagnÚH V. Jóhannesson afgreiðslum. Templars. Kaopeiidur b>að8iii8, bæði einstaklingar og stúkur, eru vin- samlega beðnir að gera blaðinu skil nú þegar. Gjalddaginn var I. mai. pkaverslon Sigjásar €ymunðssonar hefir mest og best úrval af öllum ritföngum, skólanauð- synjum, pappír og bókum. Leitið allra slíkra nauðsynja hjá Jókavers'uit Sijfásar €ynuÍssoaar. Austurstræti 18. NÝPRENTUÐ eru Stjórnarskrá og anbalög fyrir undirstúkur og fást hjá stór-ritara. Kosta 0.50 aura. TEHPKAR blað Stórstúku íslands, kemur út fyrsta fimtudag í hverjum mánuði. Verð árgangsins 3 kr. Afgreiðslumaður: Magnns V. Jóhnnucsson Vesturgötu 29. Ábyrgöarmaöur: Fétnr Zóphóníasson. Prentsmiðjan Gutenberg.

x

Templar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Templar
https://timarit.is/publication/532

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.