Nýja Ísland - 01.01.1905, Blaðsíða 12

Nýja Ísland - 01.01.1905, Blaðsíða 12
í einu stökki oft hann dvó af Arnarfelli’ að Stórasjó. 8 ]?arfir menn. Áður fyr var ekki neinn illfengari’ en SkuggaSveinn, hörku sýndi’ ’ann hreysti og þol, — en hvað var hann hjá Stóra-Kol. Undir dökkum hulinshjálm hylur ’ann sig með beitta skálm, grasafólki gerir mein; Galdra-Þi úða sér hann ein. Ekki’ er holt að fara’ um fjöll fyrir þá, sem hræðast tröll, hans er von á hverri leið, í hverjum krók hann þylur seið. Nú er tími að tygja sig tröllum á að vinna svig, og hvorki spara haus né bol á horngrýtinu Stóra-Kol. Björgum piltar bygðum iands, búum oss í Hildar-dans, hreysti sýnum, hug og þol, herjum nú á Stóra-Kol. Biýnum, dengjum beittan hjör, á bogann leggjum hvassa ör, byssur hlöðum, bregðum skálm, brynjnm oss og tökum hjálm. Göngum fram í geira þrá, Galdra-Þrúðu heitum á, dugi’ oss Jóka’ og Daníei, djarfur Stefán berjist vel. Ef vér hreinsum öræfln alþing borgar kostnaðinn, mót oss frægð og heiður hlær, hver sinn mála goldinn fær. Plausor. II. Saint Simon. (Frh) yinur hans einn, af hærri stigum, útvegaði honum nú ritarastöðu, þar sem hann átti að fá um 700 kr. um árið fyrir 9 tíma vinnu á dag. Á næturnar vann Saint Simon að ritstörfum. En að hálfu ári liðnu var hann orðinn heilsulaus. Þá var það, að maður nokkur, er áður hafði verið í hans þjónustu, en var nú orðinn efnaður, tók hann til sín, og þar hélt hann áfram störfum sinurn í fjögur ár og ritaði þá „Inngang vísinda-verka 19. aldarinnar." En nú dó vinur hans og aftur stóð hann uppi allslaus 1810. Þá ritar hann: „í fjórtán daga hefl ég lifað upp á vatn og brauð; eg hefl ekkert í ofninn oghefiorðið að selja af mér fötin til að borga með prentun á þvi, sem ég hefi skrifað." Hann lifði óreglulega á ýmsan hátt, og olli það því, að flestir sneru við honum baki. Hann reynir að verja breytni sína og segir, að nauðsyn sé á að lifa eins og hann gerir, fyrir mann, er vilji byggja á reynslunni. Og hann segir hiklaust: „Sjálfsvirðing mín hefir vaxið að sama skapi, sem ég hefl mist álit í almenningsaugum". í vand- ræðum sínum sneri hann sór til ýmsra gamallra vina sinna, en árangurslaust. Hann tékk lítilsháttar styrk frá skyldmenn- um sínum og gat þá gefið sig um hrið við ritstörfum. En skrifar stöðugt til vina sinna og biður um hjálp: „Ég er nær dauður úr hungri!“ Það, sem hann ritar nú, er bók, er hann kallar: „íhugun á vitsmun- um mannsins". Eru það hugleiðingar, bygðar á almennum viðburðum, í þeim tilgangi að koma á fót nýrri fólags-skipun. <Frh->- Þessi tölublöð (I.—Q.) kosta 20 aura. Utgefandi og ábyrgðarraaður: ÞORV. ÞORVARÐSSON, prentari Prentsm. Gutenberg.

x

Nýja Ísland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja Ísland
https://timarit.is/publication/533

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.