Sumarblaðið - 17.06.1917, Blaðsíða 13

Sumarblaðið - 17.06.1917, Blaðsíða 13
SUMARBLAÐIÐ drifnir. En allir voru þeir lirifnir yfir ferðinni, þótt eríið væri. Af fjöllunum í grend við Reykjavík er Hengillinn einna bezt fallinn, ef menn ætla að skemta sér um helgar. Má hæglega komast fram og aftur frá laugardagskvöldi til sunnudagskvölds. Það borgast hverjum ómakið, sem legg- ur það á sig, því að auk þess sem út- sýnið er ljómandi fagurt, er sjálfur Hengillinn svo margbreytilegur og fall- egur, að það eitt er nóg til þess að borga fyrirhöfnina. — — — Myndir frá Hengilförinni verða til sýnis í glugga Isafoldar í dag, 17. júni.* X. „Sportsfélag Reykjavikur11. k- Ekki verður oss Islendingum brugðið um það, að vér séum eigi félagslyndir menn og félagsfúsir. Ekki heyrum vér fyr nefndan nýjan félagsskap, en vér þjótum upp til handa og fóta til að taka þátt í honum, ef það að eins er nefnt við oss með einu orði. Afleiðingin af þessu hefir eðlilega orðið sú, að hér á landi hefir að undanförnu verið og cr enn stofnaður mesti aragrúi af félögum í öllum mögulegum og stundum jafnvel ómögulegum tilgangi, og margir eru þeir, ininsta kosti hér í höfuðstaðnum, sem litla hugmynd hafa um það, i hve mörg- um félögum þeir eru meðlimir. Þeir telja á fingrum sér, en ein umferð á fingrunum nægir hvergi nærri. Er því sízt að furða, þó að slíkir menn vinni ekki af kappi fyrir öll þau félög, sem þeim ber skylda til að sinna samkvæmt félagslögum, verða þá sum þeirra eðii- lega út undan, enda cr það kunnugra ►— en frá þurfi að segja, að félög eru liér oft engu síður íijót að lognast út af en 7 að fæðast, þó að fá hafi að likindúrfi orðið skammlífari en félag það, sem liér er gert að umtalsefni, sumpart til þess að sýna og sanna, hve snögglega fé- lagsskapur getur hér myndast og horfið, sumpart mönnum til viðvörunar, að flana ekki út í að stofnsetja nýjan félagsskap án þess að nokkur trygging sé fyrir hendi um þroskunannöguleika. »Sportsfélag Rvíkur* var stofnað þriðjudaginn 17. marz 1896 kl. 8*/2 öíð* degis í Good-Templarahúsinu, samkvæmt fundarboði útgefnu sama dag, er getur þess, að hið væntanlega félag eigi að »stunda meðal annars knattleiki, þreyta róðra og hraðgöngur m. fl.«. Á fundinum mættu 17 bæjarbúar, »er allir tjáðu sig fúsa til að taka þátt í slíkri félagsstofnun«. Ekki stóð á því fremur en vant er. Stjórn var kosin á fund- inum og lög félagsins samþykt. Undir- búningur hafði verið góður. Samkvæmt 1. gr. laganna var fyrirætlun félagsins: »að glæða áhuga á líkamlegum íþróttum og aflraunum, fyrst og fremst með þvi, að láta menn temja sér reglubundna íþróttaleiki undir berum himni, veita tilsögn í þeim og stjórna þeim«. Á þessum stofnfundi voru ennfremur kosnir endurskoðendur og lcsið upp bréf til bæjarstjórnar um að mega nota norðurreiti Austurvallur ti'l íþróttalegra leikja félagsins. Það loyfi var vcitt með bréfi bæjarfógeta, dags. 20. s. mán. 18. marz, daginn eftir stofnfundinn, kom nýkosin stjórn hins nýstofnaða félags saman og skifti mcð sér verkum. Þvi næst var tekið fyrir að safna mönnum í félagið til þess að efla það og styrkja. Gekk sú söfnun svo grciðlega, að á 1—2 dögum voru félagsmenn orðnir 90 og af þeim 13 æfimeðlimir, er guldu 10 kr. hver í félagssjóð. Tillag annara var 2 kr. Það kom nú fijótt í ljós, að þessir 2 fcngnu reitir Austurvallar voru alls- endis ónógur leikvöllur fyrir félagið og

x

Sumarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sumarblaðið
https://timarit.is/publication/535

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.