Þjóðmál - 17.05.1971, Qupperneq 1

Þjóðmál - 17.05.1971, Qupperneq 1
Framboð samtakanna í Suðurlandskjördæmi uppeldisfræðingur, Vestm. 6. Baldur Ámason, bóndi, Torfastöðum. 5. Herdís Jónsdóttir, ljósmóðir, Hveragerði. 2. Ilalldór Hafsteinsson, bíiamálari, Selfossi. 3. Hafdís Daníelsdóttir, húsmóðir, Vestmannaeyjum, 4. Þorsteinn Sigmundsson, bóndi, Rangá. 7. Árni Jóhannesson, háskólancmi, Selfossi. 8. Sigurveig Sigurðardóttir, hjúkrunark., Laugarvatni. 9. Lúvís Pétursson, vélstjóri, Selfossi. 10. Magnús Steindórsson, bílaviðg.maður, Selfossi. 11. Jóhann Pétur Andersen, háskólanemi, Vestm. Á varp Um leið og við birtum yður framboðslista Samtaka frjálslyndra og vinstri manna i Suðurlandskjördæmi við Alþingiskosningarnar 13. júni 1971, viljum við vekja athygli yðar á eftirfarandi: 1. Samtök frjálslyndra og vinstri manna eru stofnuð til að hleypa nýju blóði í islenzk stjórnmál, til að uppræta spillt vinnubrögð stjórnmálamannanna og hnekkja ofurvaldi fiokksræðis yfir hinum almenna þjóðfélagsborgara. 2. Samtök frjálslyndra og vinstri manna líta á það sem eitt af meginverkefnum sínum að endur- skipuleggja flokkakerfið á físlandi. Til þess að þessu markmiði verði náð, er flokkurinn reiðu- búinn til að leggja sjálfan sig niður og ganga til myndunar nýs jafnaðarmannaflokks. 3. Samtök frjálslyndra og vinstri manna vilja vinna að endurbótum og framförum á hvaða sviði þjóð- félagsins sem er, svo sem afnámi efnahagslegs misréttis og peningavalds, upptöku nýs og nú- tímalegs menntakerfis, bættri aðstöðu ís/enzkra atvinnuvega. Kæru Sunnlendingar, við viljum vekja sérstaka at- hygli á þvi, að hvert það atkvæði, sem fellur í skaut Samtakanna í þessu kjördæmi er ekki aðeins stuðn- B ingur við frambjóðendur þar, heldur stuðningur við þá almennu hreyfingu um land allt, sem Samtökin hafa vakið. Miðað við úrslit siðustu bæjar- og sveitar- stjórnarkosninga, sem voru frumraun okkar nýja flokks, má telja liklegt, að Samtökin muni fá þrjá kjörna þingmenn, þ. e. i Reykjavik, á Vestfjörðum og á Norðurlandi eystra. Tala uppbótarþingsæta er hins vegar óvis og fer eftir atkvæðatölu Samtakanna í heild á öllu landinu. Þó er engin goðgá, að gera ráð fyrir a.m k. 4 uppbótaþingsætum. Það má þvi vera Ijóst, að EKKERT atkvæði fer til ónýtis, sem þessum Samtökum eru greidd. Þau renna öll í þann heildar- sjóð, sem fella mun núverandi rikisstjórn frá völdum. Samherjar. Gerum sigur Samtakanna sem stærstan! Gerum fall rikisstjórnarinnar sem eftirminnilegast! KJÖRDÆMISRÁÐ.

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/551

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.