Þjóðmál - 06.02.1974, Blaðsíða 8
8
Þ J Ö Ð M Á L
Friðbjarnarhús á Akureyri er í
eign góðtemplara, sem hafa gert
húsið að minjasafni. Fyrsta góð-
templarastúkan hér á landi, stúk-
an ísafold, var stofnuð í þessu
húsi 10. janúar 1884. Voru því
90 ár liðin frá stofnun IOGT
hér á landi i fyrra mánuði.
* m.r. t ■' .
‘ l KIÐBJABNARHÚS. Akurcyri
Rætt við Ólaff Hauk Árnason,
áfengisvarnaráðunaut ríkisins
Framhald af bls. 12
óþarfan í samskiptum manna. —
Þetta gamla fólk er margt bind-
indissamt.
— Ert þú ánægður með núver-
andi áfengislöggjöf?
— Að stofni til eru áfengislög
in frá 1954. Þau eru að ýmsu
leyti góð að mínu viti. í sumum
greinum bera þau af löggjöf ann
arra Norðurlandaþjóða um þessi
efni. Þó eru gallar á að sjálf-
sögðu. Vínveitingahúsin, sem
leidd voru til vegs og áttu að
stuðla að menningarlegri drykkju
háttum, hafa reynst hinar mestu
óþurftarstofnanir, sums staðar
beinlínis skólar í drykkjuskap.
Áhrif þjónaverkfallsins í vetur
voru þungur dómur á þær stofn
anir.
Þá er það ósvinna að leyfa
ferðafólki, farmönnum og flug-
liðum að kaupa tollfrjálst áfengi.
Þar er um að ræða mismunun,
sem ekki á að þola í lýðræðis-
þjóðfélagi. Ferðalangar munu oft
vera sæmilega efnum búnir og
þvf óþarft að veita þeim fjárhags
legar ívilnanir fram yfir þá, sem
heima sitja og komast hvergi.
Og ekki má gleyma Katli garm
inum, umboðsmannakerfinu. —
Áfengisverslun ríkisins mun
hafa verið sett á stofn til að
koma í veg fyrir, að hér mynd-
aðist innlent áfengisauðmagn, að
iljar, sem hefðu persónulegan
hagnað af drykkju annarra. Nú
sitja hér tugir manna í fínum
kontórum og raka saman fé fyrir
það eitt að heita umboðsmenn.
erlends áfengisauðmagns.
Það er þeirra hagur, að drykkj
an sé sem mest, Bakkusarhof
öldurhúsanna veglegri en altari
nokkurrar kirkju.
Vafamál tel ég einnig, að það
samrýmist anda laganna, að
þjónar fái prósentur af seldu
áfengi, hafi beinan hagnað af
þvf, að mest sé drukkið.
Valdsvið áfengisvarnanefnda
er of þröngt, að mínu viti, og
viðurlög við brotum á áfengis-
lögum þarf að herða.
Og ef öllu réttlæti væri full-
nægt, ættu umboðsmenn áfengis
gróðans og veitingalýðurinn að
borga bróðurpartinn af því fé,
sem fer til hjálpar drykkjusjúk-
um, þeim sem söluvara þeirra
hefur komið á kaldan klaka.
— Eru á döfinni einhverjar
rannsóknir í áfengismálum?
— Áfengisvamaráð beitti sér
fyrir því árið 1967, að hafnar
voru vísindalegar rannsóknir á
áfengismálum. Hefur dr. Tómas
Helgason prófessor staðið fyrir
þeim frá upphafi. Liggja þegar
fyrir ýmsar niðurstöður, en að
sjálfsögðu er verkefnið ævarandi,
því að tímarnir breytast og menn
irnir með, eins og fornkveðið
er. Ég tel ljóst, að íslensku vís-
indamennirnir, sem að rannsókn
unum vinna, búa þegar yfir
dýpri þekkingu á vissum atrið-
um þessa máls en aðrar þjóðir
hafa aðgang að.
Víða í heiminum er þó unnið
markvisst að rannsóknum á
Þingmálaþáttur —
Framhald af bls. 4
ekki í raun og veru hægt að
reka öfugt ofan i hann aftur
við fyrsta tækifæri.“
Bjami Guðnason minntist einn
ig á það að tvö ráðuneyti birtu
ekki auglýsingar í Nýju landi
og fannst það furðulegt, þar sem
að því blaði standi þó Frjáls-
lyndi flokkurinn, einn stjórn-
málaflokkur. Sannleikurinn í
því máli er sá, að ráðuneytin og
opinberar stofnanir hafa birt
auglýsingar i málgögnum stjóm
málaflokkanna. Nýtt land hafði
á sínum tíma birtingu opinberra
auglýsinga, sem málgagn SFV.
Eftir að Bjami Guðnason klauf
sig út úr SFV, vom öll tengsl
Nýs lands og SFV rofin, og blað
ið var frá þeim tíma eins og
hvert annað óháð blað, sambæri-
legt við Mánudagsblaðið og Ný
vikutíðindi, enda gefið út af
hlutafélagi og ekki i tengslum
við neinn stjórnmálaflokk. Þrátt
þessu sviði. Tvö lönd vil ég
nefna sérstaklega, Finnland og
Kanada. Og okkur er jafngott
að minnast þess, að fyrir liggja
ýmsar staðreyndir, sem betra er
að kunna skil á en ekki. Það er
til dæmis staðreynd, að því auð-
veldara sem er að nálgast áfengi,
þeim mun meira er drokkið, og
því meira sem drukkið er, þeim
mun stórkostlegra verður tjónið,
sem áfengisneyslan veldur. Tíðni
drykkjusýki stendur í réttu hlut
falli við neyslumagn áfengis, og
gildir einu, hvaða tegundir neytt
er, öls, léttra vína eða sterkra
drykkja. Þetta eru staðreyndir.
Það er fávíslegt að vera að burð-
ast með einkaskoðanir, sem fara
í bág við rannsóknir i mörgum
löndum. Það er alveg jafngott
að mótmæla margföldunartöfl-
unni.
fyrir þetta virðast flestar opin-
berar stofnanir hafa látið und-
an þrýstingi og haldið áfram að
auglýsa i Nýju landi, en engin
viðhlítandi skýring hefur feng-
ist á því hvérs vegna önnur sam
bærileg blöð urðu þess þá ekki
einnig aðnjótandi. Nú er að vísu
sagt, eftir stofnun Frjálslynda
flokksins, að Nýtt land styðji
hann, en ekki er vitað til þess
að hluthafafundur í Huginn h.f.
sem á og rekur Nýtt land, hafi
samþykkt þann stuðning.
Annað dæmi má benda á.
Reykjavíkurborg hefur birt aug-
lýsingar í þeim blöðum, sem tal-
in eru styðja borgarfulltrúana,
eða þá flokka, sem þeir eiga
sæti í borgarstjórn fyrir. Af
þeim sökum birtir borgin aug-
lýsingar í dagblöðunum og Þjóð-
málum, málgagni SFV. Hins veg-
ar birtir borgin einnig auglýs-
ingar í Nýju landi, sem er þó
ekki vitað til að styðji neinn
borgarfulltrúa. Það telur Bjami
Guðnason væntanlega ekki óeðli
lega meðferð almannafjár.
Evrópuráðið veitir styrki til kynnisdvalar
erlendis á árinu 1975 fyrir fólk, sem starf-
ar á ýmsum sviðum félagsmála.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást i
félagsmálaráðuneytinu. Umsóknarfrestur
er til 1. mars n.k.
Borgarstjórnarkosningarnar:
Undirbúningur
hufinn hjn SFV
i Reykjavik
S.l. mánudagskvöld var hald-
inn almennur félagsfundur hjá
Samtökum frjálslyndra og vinstri
manna í Reykjavík, en fundur
þessi var vel sóttur og gengu inn
í félagið á fundinum 29 nýir fé-
kosning uppstillingamefndar
lagar. Á dagskrá fundarins var
vegna borgarstjórnarkosninganna
í vor og varnarmálin.
Kjörnefnd kosin.
Rætt var um undirbúning að
framboðslista vegna borgarstjórn
arkosninganna og fyrirkomulag
í því sambandi. Þessir félagar
tóku til máls: Bragi Jósepsson,
Einar Hannesson, Magnús Torfi
Ólafsson, Steinunn Finnbogadótt
ir, Alfreð Gíslason og Sigríður
Hannesdóttir. Að umræðum lokn
um var kjörin uppstillinganefnd
og hlutu þessir félagar kosningu
I nefndina: Árni Markússon, Al-
freð Gíslison, Daníel Kjartans-
son, Einar Hannesson, Eyborg
Guðmundsdóttir, Marta Svein-
björnsdóttir og Valborg Böðvars.
dóttir.
Varnarmálin
Haraldur Henrysson flutti
framsögu um varnarmálin, en
hann ræddi fyrst og fremst um
viðhorf þau, sem nú væru uppi
varðandi afgreiðslu þessa máls.
Hann kvað SFV hafa margsinnis
gert samþykktir, á stofnfundi,
lantísfuridum og flokksstjórnar-
fundum. Þar hefði verið tekin
eindregin afstaða gegn hersetu
og einnig gegn aðild að NATO.
Fyrir þessari stefnu hefði verið
barist i síðustu Alþingiskosning-
um og á gmndvelli hennar m.a.
verið unnin sigur.
Að framsögu Haraldar lokinni
urðu umræður og töluðu þessir:
Ingólfur Á. Þorkelsson, Sigríður
Hannesdóttir, Bragi Jósepsson,
Jón Otti Jónsson, Kári Arnórs-
son og Guðmundur Bergsson.
Samþykkt var tillaga um vam
armálin, sem birt er á forsíðu
blaðsins.
Félagsmál
Rætt var um fjármál og al-
menna starfsemi félagsins, sem
fer nú vaxandi, en til þess hefur
verið ráðinn starfsmaður, Sigur-
laug Guðmundsdóttir, sem dag-
lega er til viðtals á skrifstofu
þess kl. 15—17. N.k. laugardags-
kvöld verður þorrablót á vegum
félagsins og 1 undirbúningi er
Flóamarkaður til tekjuöflunar
fyrir félagið.
Fundarstjóri á fundinum var
Bragi Jósepsson, en ritari fund-
arins Einar Harðarson. — Þær
Pálína Adólfsdóttir og Guðbjörg
Ólafsdóttir önnuðust kaffiveiting
ar af myndarskap.
Sem fyrr segir var þessi fund
ur vel sóttur og sýnilegt á öllu
að félagar eru ráðnir í að efla
starfsemi félagsins á næstunni.
Vegið að íslenskum
málstað
Eftirfarandi samþykkt var ein-
róma gerð á fundi stjórnar Sam-
taka frjálslyndra og vinstri
manna í Reykjavík 24. janúar
1974:
„Stjórn Samtaka frjálslyndra
og vinstri manna í Reykjavlk
ályktar eftirfarandi:
Nú eru gerðar ákafar tilraun-
ir til að hindra það, að ákvæði
málefnasamnings rikisstjórnar-
innar um brottför erlends her-
liðs af landinu nái fram að
ganga. Þetta er gert m.a. með
undirskriftasöfnun, en það fonn
skoðanakannana er almennt for-
dæmt af fræðimönnum, sem
fjalla um félagsleg málefni, þar
sem þær þykja ekki lýðræðis-
legar í framkvæmd og gefa
ranga og villandi mynd af af-
stöðu almennings. Lýsir stjóm-
in furðu sinni á þvi, að ábyrgir
einstaklingar og forustumenn
skuli reka áróður á þennan hátt
á sama tíma og íslensk stjórn-
völd eiga I viðræðum við Banda-
ríkjamenn um endurskoðun
vamarsamningsins, en þessi
vinnubrögð híjóta fyrst og fremst
að verða málstað Islendinga í
þeim viðræðum til tjóns.
Um leið og stjómin áréttar
þá stefnu, sem landsfundir Sam-
taka frjálslyndra og vinstri
manna hafa mótað um brottför
hersins, vill hún jafnframt minna
á, að fyrirheit ríkisstjórnarinn-
ar um slíka brottför var í fullu
samræmi við markaða stefnu
allra núverandi stjómarflokka,
sem hlutu fylgi meiri hluta
kjósenda i síðustu Alþingis-
kosningum. Stjórnin treystir þvi,
að það sé enn staðföst ætlan
ríkisstjórnarinnar að efna þetta
fyrirheit og vonar, að ágreining-
ur um framkvæmdaatriði máls-
ins verði þar ekki til hindrun-
ar. Skorar hún á alla þá, sem
andvígir eru hinum erlendu her
stöðvum, að taka höndum sam.
an um að styðja ríkisstjómina
til lausnar þessa máls, þannig að
framangreindar tilraunir til að
tryggja hér hersetu til frambúð
ar megi ekki takast.“
Búnaðarblaðið flytur mikinn
fjöida greina um landbúnaðar-
og þjóðfélagsmál. — Áskriftar-
sími í Reykjavík er 85153 og
hjá Þorvaldi G. Jónssyni, Guð-
rúnarstöðum, A-Hún., sími um
Ás.