Þjóðmál - 21.02.1974, Síða 1
UMRÆÐA UM
VARNARMÁLIN
Sjá bls. 6 og 7
4. árg. Fimmtudagurinn 21. febrúar 1974 4. tbl.
Ríkisstjórnin leggur sinn skerf til Inusnnr vinnudeilnnnnu:
Miklar kjarabætur í formi skatta-
breytinga og úrbætur í húsn.málum
• ' _ ■■■'.: • •' • • ■ ■' •■• ■ • " ... • ..
Verkfall það sem boðað hafði verið s. I. þriðjudag
kom ekki til framkvæmda vegna þess að launþegasam-
tökin ákváðu að fresta því þar til á laugardag. Hér
varð þó ein undantekning á, þar sem verslunarmenn
tóku sig út úr heildarsamtökunum og fóru í verkfall
þann 19.
Félagsmálaráðherra, Björn Jónsson, hefur tekið þátt í
samningagerð deiiuaðila og er það nýlunda hér á landi
að ráðherra taki þannig beinan þátt í því að leysa
kjaradeilu.
Björn Jónsson ræddi við blað-
ið á þriðjudaginn, og sagði
hann m. a.:
— Það voru þrír þættir í
kröfugerð launþegasamtakanna,
sem sneru beint að ríkisvaidinu:
Kröfumar í skattamálum, um-
bætur í húsnæðismálum og um
vinnuverndarmál.
Um stöðuna núna er það að
segja að algjöriega hefur verið
gengið frá aðgerðunum í hús-
Bæjarstjórnarkosningarnar a Akureyri:
Sameiginlegt framboð Al-
þýðuflokksins og Samtaka
vinstri manna
Nokkm fyrir áramót komu
nefndir frá Samtökum vinstri
manna á Akureyri og Alþýðu-
flokksfélögunum á Akureyri
saman til fundar til að kanna
möguleika á sameiginlegu fram
boði þessara aðila við bæjar-
stjórnarkosningarnar í vor.
Iíom strax í ljós áhugi beggja
í þessu efni og var ákveðið að
halda viðræðum áfram eftir
áramót.
Nú hafa trúnaðarmannaráð
beggja flokkanna samþykkt
með samhljóða atkvæðum, að
framboð verði sameiginlegt.
Samkomulag er um, að full-
trúar Alþýðuflokksins skipi
fyrsta sæti og síðan annaðlivort
sæti á framboðslistanum, en
fulltrúar Samtaka vinstri
manna annað sæti og síðan á
ima liátt annaðhvort sæti. Þá
hefur verið ákveðið að óska
eftir því, að listabókstafur verði
sá sami og hjá hliðstæðum lista
í Reykjavík.
Sameiginleg stefnuskrá hefur
verið undirbúin og fleira, sem
ákveða þarf í sambandi við
undirbúning kosninganna.
Ennþá hefur hvorugur flokk
anna gengið endanlega frá vali
frambjóðenda, en unnið er að
þvi, og miðað við að framboðs-
Iistinn verði tilbúinn um næstu
mánaðamót.
næðismálunum. Þar eru aðalatr-
iðin þessi:
Þriðjungur af áætlaðri
íbúðarþörf landsmanna
leyst á þessum grundvelli
Að auka stórkostlega íbúða-
byggingar á félagslegum grunni
fyrir efnaminna fólk. Stefnt
verði að því að á árunum 1976—
1980 verði eigi minna en þriðj-
ungur af áætlaðri íbúðaþörf
landsmanna leyst á þessum
grundvelli. Þessar íbúðir yrðu:
Verkamannabústaðir, söluíbúðir,
eins og þær, sem reistar hafa
verið á vegum Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunar í
Reykjavik og leiguíbúðir á veg-
um sveitarfélaga eða annarra að-
ila.
Gert er ráð fyrir því að launa-
skattur, sem rennur í Bygging-
arsjóð ríkisins, verði liækkaður
í 2%, til þess að Byggingasjóði
verði kleift að standa undir Ián.
veitingum vegna aukinna bygg-
ingaframkvæmda. Ennfremur er
gengið út frá því að lífeyris-
sjóðir stéttarfélaga taki þátt í
fjármögnun þessara félagslegu
bygginga sem nemur 20% af
Framhald á bls. 11
Taka sæti á Alþingi
Nýlega tóku sæti ó Al-
þingi tveir varaþingmenn
Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna. Hjördís Hjör-
leifsdóttir tók sæti Hanni-
bals Valdimarssonar og
Halldór S. Magnússon
sæti Karvels Pálmasonar.
Halldór S. Magnússon
Hjördís Hjörleifsdóttir
— Tekjuskattur lækkaður um 40-45%
— Lífeyrissjóðirnir verðtryggðir að hluta
— Félagslegar framkvæmdir í húsnæðis-
málum stórauknar