Þjóðmál - 06.03.1974, Blaðsíða 1
4. árg. Miðvikudagurinn 6. mars 1974 5. tbl.
Getur ekki orða
bundist lengur -
— ræða Hjördísar á Alþingi bls. 6 og 7
f síðustu viku var kveðinn upp dómur í
bæjarþingi Reykjavíkur í máli því, sem Bjarni
Guðnason og nokkrir félagar hans höfðuðu í
nafni Samtaka frjálslyndra í Reykjavík gegn
Guðmundi Bergssyni og þeim stjórnarmönn-
um öðrum, sem höfðu tekið við stjórn félags-
ins eftir ákvörðun félagsfundar, en þeirri á-
kvörðun vildi Bjarni og félagar ekki hlýða.
Úrslit málsins urðu þau, að málinu var vísað
frá á þeim forsendum, að þessi málshöfðun
í nafni félagsins væri ólögmæt og brottvikn-
ing Bjarna úr samtökunum hefði verið lögleg.
Framhald á bls. 13
Guðmundur Bergsson, formaður SF í Reykjavfk.
Lögbannsmól
Bjnrnn og félagn
Frá jarðhitasvæðinu á Reykjanesi.
Sjóefnaverksmiðja
á Reykjanesi er
arðbært fyrirtæki
Nú er lokið tæknilegum og fjárhagslegum athugunum
á byggingu sjóefnaverksmiðju á Reykjanesi. Niðurstöð-
ur eru þær að það sé tæknilega framkvæmanlegt að
byggja verksmiðju, sem framleiði 250.000 tonn af salti
árlega og að rekstur verksmiðjunnar sé fjárhagslega
hagkvæmur. — Þessar upplýsingar komu fram í svari
iðnaðarráðherra við fyrirspurn Halldórs S. Magnússonar
á Aiþingi í síðustu viku.
Nú er lokið tæknilegum og
fjárhagslegum athugunum á
byggingu sjóefnaverksmiðju á
Reykjanesi. Niðurstöður eru þær
að það sé tæknilega framkvæm-
anlegt að byggja verksmiðju,
sem framleiði 250.000 tonn af
salti árlega og að rekstur verk-
smiðjunnar sé fjárhagslega hag-
kvæmur. Þessar upplýsingar
komu fram í svari iðnaðarráð-
herra við fyrirspurn Halldórs S.
Magnússonar á Alþingi s. 1.
mánudag.
Áætlaður stofnkostnaður verk-
smiðjunnar er rúmlega 1220
millj. kr. Árlegur rekstrarkostn-
aður er áætlaður um 200 millj-
kr. og gert er ráð fyrir að fyrir-
tækið muni skila um 20% ár-
legri ávöxtun stofnfjár.
Það, se.m nú liggur fyrir, er að
kannað verði með hvaða hætti
unnt sé að fjármagna byggingu
verksmiðjunnar. Þess er að
vænta að ríkisstjórnin hefji þá
athugun innan tíðar.
Framleiðsla verksmiðjunnar
byggist á því að með borunum
fæst gufa og jarðsjór. Gufan er
síðan notuð til þess að vinna
ýmiss efni úr jarðsjónum. Þau
helstu eru salt, kalsium-klóríð og
kalíumklóríð. Gert er ráð fyrir
að verksmiðja af þeirri stærð,
sem áætlað hefur verið muni
fullnægja þörf innanlands fyrir
fisksalt, og nokkuð verði flutt út
af því, fyrst og fremst til næstu
nágrannalanda.
Hér fer á eftir fyrirspun Hall-
dórs S. Magnússonar til iðnaðar-
ráðherra og svar ráðherrans.
1) Hvað líður rannsóknum
vegna byggingar og rekstrar sjó-
efnaverksmiðju á Reykjanesi?
Framhald á bls. 14
Vinnudeilum afléttr
Kjarasamningar gerðir
til 2ja óra
Eins og alkunna er, tókust greindum við frá þeim kjara-
samningar í vinnudeilunum bótum í formi skattalagabreyt-
miklu mánudaginn 25. febrúar inga og úrbóta í húsnæðismál-
s.l., er fólu m. a. í sér allt að um, sem ríkisstjórnin lagði
25% launahækkun á samnings- frarn og áttu vissulega sinn
tímabilinu, auk margra annara veigamikla þátt í lausn vinnu-
mikilvægra kjaraatriða. deilunnar. í næsta blaði mun-
Þá hafa þau tíðindi gerst, að um við skýra nánar frá megin-
ríkisvaldið hefur fallist á atriðum kjarasamninganna, en
nokkrar breytingar á samningi Margrét Auðunsdóttir, fyrrv.
þess og BSRB til samræmis við formaður Sóknar, sem átti sæti
hina nýju kjarasamninga í 30-mannanefnd ASl, gerir
verkalýðsfélaganna. þessum málum skil í grein.
í seinasta tölublaði Þjóðmála