Þjóðmál - 21.03.1974, Síða 1
4. árg. Fimmtudagurinn 21. mars 1974 6. tbl.
Ovissa /
efnahagsmálum
Sjá leiðara á bls. 4
Ouðnl iónuon,
kunnari
Ingjaldur fiaktson,
bifreiSastjóri
Framboðslisti Framsóknarflokksins og
Samtaka frjálslyndra og vinstri manna
í Kópavogi vií
Frumvarp ríkisstjórnarinnar um skattkerfisbreytingu
hefur nú verið samþykkt á Alþingi. Auk stjórnarþing-
manna greiddu þingmenn Alþýðuflokksins atkvæði með
frumvarpinu, en á móti voru Sjálfstæðismenn og Bjarni
Guðnason.
Þegar frumvarpið um skattkerfisbreytingu hafði verið
til meðferðar í báðum deildum þingsins var Ijóst að það
myndi ekki hljóta staðfestingu Alþingis óbreytt. Því
brá ríkisstjórnin á það ráð að freista þess að ná sam-
komulagi við stjórnarandstöðuna um afgreiðslu málsins.
Viðræður þar um leiddu til þess að flutt var breyting-
artillaga þess efnis að í stað 5 stiga hækkunar söluskatts
kæmu 4 stig. Þannig breytt var frumvarpið samþykkt.
Þessi breyting leiðir til verri afkomu ríkissjóðs en ella
og nauðsynlegt mun verða að taka upp niðurskurð fjár
lagaútgjalda til þess að mæta tekjutapi vegna skattkerf-
isbreytingarinnar. Hitt er þó sýnu mikilvægara að tekist
skuli hafa að fá staðfestingu Alþingis á þeirri skatt-
kerfisbreytingu, sem alþýðusamtökin höfðu óskað eftir
að gerð yrði, og var beinlínis forsenda kjarasamninga.
Nlur Boaruon,
laganorol
Guðletfur Cuðmunditon
kennari
Geitur Guðmundnon,
umijónarmaður
Það vekur nokkra athygli að frumvarpið hlýtur að
lokum aðeins atkvæði stjórnarþingmanna og Alþýðu-
flokks. Hvorki þingmenn Sjálfstæðisflokks né Bjarni
Guðnason sjá ástæðu til þess að verða við óskum laun-
þega í landinu um skattkerfisbreytingu.
Flokksstjórnarfundur
Framkvæmdastjórn SFV hefur samþykkt að
boða til flokksstjórnarfundar laugardaginn 6.
apríl 1974. Fundurinn verður haldinn í Félags-
heimili Fóstbræðra, Langholtsvegi 109—111,
Reykjavík og hefst kl. 14.
Dagskrárefni fundarins verða: Efnahagsmál
og herstöðvarmál.
Framkvæmdastjórn væntir þess, að sem
flestir flokksstjórnarmenn sjái sér fært að
mæta á fundinum.
Salómon Elnanton
delldontjórl
Skattkerfís-
breytingin
samþykkt
1»
Skuli Sigurgrfmtton
bankafulltrúi
Jón Skaftaton
alþlnglsmaður
Guðrún Einarsdóttir
tkrifttofuttúlka
Inga Hrönn Péturtdóttir
húsfrú
Jónat Póltton,
skólastjóri
Sólvtlg Runótftdóttir
gjaldkeri
Andrés Kristjántton
fræðslustjóri
Hjörtur Hjartarton
framkvœmdattjóri
HS*
Jóhaim H. Jónuon
yflrverkttjóri
Valgerður Jónsdóttir
kennarl
Jón A. Bjarnason,
Ijósmyndarl
Hulda Jakobsdóttir,
bæjarfulltrúi
Hulda Pótursdóttlr
húsmóðlr
Guttormur Sigurbjörnss.
endurskoðandi