Þjóðmál - 31.05.1974, Page 1

Þjóðmál - 31.05.1974, Page 1
Stefna jafnaðar- og sanivinnnnianna — balmíða Malj*ajín SFY. Möflruvallalirovt''ingar ojí Sanitaka jarnaöarmanna Magnús Torfi Ólafsson: Rjúfum herfjöturinn! f Magnús Torfi ólafsson Um það er spurt i Alþingiskosningunum 30.' júni, hvort sú endurnýjun flokkakerfisins, sem hófst i siðustu þingkosningum, á að halda áfram eða falla niður um skeið, þannig að allt sæki á ný i sama horf og rikt hefur frá þvi gamla flokkaskip- unin komst á áratuginn frá 1920 til 1930. Svarið veltur á þvi, hvert brautargengi kjósendur veita F-listanum, sameiginlegu framboði Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, Möðruvallahreyf- ingar og Samtaka jafnaðarmanna. Framboð F-listans i öllum kjördæmum eru komin fram og bera með sér að vel hefur verið að verki staðið af hálfu samstarfsaðila, þrátt fyrir nauman tima og þá annmarka sem þvi fylgdu fyrir nýmyndaða fylkingu að sveitarstjórnar- kosningar i lok skamms framboðsfrests trufluðu undirbúningsstarfið. Ber að þakka öllum sem af snarræði og ötulleik réðu fram úr hverjum vanda og gerðu að engu hrakspár óvildarmanna. Gömlu flokkarnir munu leggja á það höfuðkapp i kosningabaráttunni að kæfa endurnýjunaraflið i islenskum stjórnmálum, sem sameinast hefur um F-listann. Þeir vilja halda stjórnmálunum i þeim viðjum stöðnunar og sjálfheldu, sem valda þvi hve torvelt hefur reynst kjörtimabil eftir kjörtimabil að ráða fram úr aðkallandi vanda i efnahagsmálum og byggðaþróun og gagnvart viðvarandi hersetu, svo einungis sé stiklað á þvi stærsta. Þeir sem talið hafa að sameiningu jafnaðar- og samvinnumanna i einni stjórnmálaheild yrði komið á með skyndibrullaupi Samtakanna og Al- þýðuflokksins eru nú reynslunni rikari. Afdrif kosningabandalags þessara flokka i borgar- stjórnarkosningunum i Reykjavik hefur leitt i ljós tvöfeldni og bellibrögð forustu Alþýðuflokks- ins. Hún skirrðist ekki við að beina fylgi sinu til Framhald á bls. 6 Þjóðmál vikublað Akveöiö hefur veriö aö gefa „Þjóömái” út vikulega sem málgagn Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, Mööruvallahreyf- ingarinnar og Samtaka jafnaöarmanna, en þessir aöilar standa sem kunnugt er saman aö framboðslistum. Jafnframt þvi sem útgáfu- dögum er þannig fjölgaö, er stefnt aö þvl aö blaðið komist út til sem flestra jafnaöar- og samvinnumanna í landinu. Stuöningsmenn SFV, Mööru- vallahreyfingarinnar og Samtaka jafnaöarmanna eru þvi kvattir til þess að taka virkan þátt i þvi að efla blað- iö og auka útbreiöslu þess á næstu dögum og vikum. Nýr ritstjóri Elias Snæland Jónsson hefur veriö ráöinn ritstjóri Þjóö- máia. Hann hefur unnið biö blaöamennsku um 10 ára skeið. Samtimis tekur ný ritnefnd viö störfum, en i henni eru Einar Hannesson, Kristján Bersi Ólafsson, Vésteinn Ólason og Andrés Kristjáns- son. Um leið og þessir nýju starfskraftar eru boðnir vel- komnir til starfa, færir blaö- iö fyrrverandi ritnefndar- mönnum þakkir fyrir vel- unnin störf. SFV, Möðruvaliahreyfingin og Samtök jafnaðarmanna vinna saman: Vinstri menn þriggja flokka sameinast í þingkosningum Styrkur þeirra ræður úrslitum um framtíð vinstri stefnu á íslandi Samtök frjálslyndra og vinstri manna, Möðru- vallahreyfingin og Samtök jafnaðarmanna hafa tekið höndum saman i þeim pólitisku átökum, sem framundan eru. Þessir þrir aðilar byggja samstarf sitt á kosningastefnuskrá, sem felur i sér skýra og aldráttarlausa jafnaðar- og samvinnustefnu. Á þessum trausta málefnagrundvelli leita vinstri menn úr þremur stjórnmálaflokkum sameiginlega eftir stuðningi kjósenda. Það, hver sá stuðningur verður, mun ráða úrslitum um það, hvort hægt verður að mynda félagshyggjustjórn að loknum alþingiskosningunum, eða hvort ihaldsöflin verða allsráðandi á ný. Samstarf Samtaka frjálslyndra og vinstri manna og Mööruvalla- hreyfingarinnar var ákveöiö af báöum aðilum sunnudaginn 19. mai stðastliöinn. bann dag samþykkti flokksstjórnarfundur SFV og Lands- fundur Mööruvallahreyfingarinnar sameiginlega kosningaávarp, þar sem mótuö var skýr og eindregin stefna I stærstu málum þjóðarinnar I dag. Þetta kosningaávarp birtist Iheild á baksiðu þessa blaös. begar samkomulag hafði náöst um málefnagrundvöll, var af báöum aöilum samþykkt aö skipa sérstaka framkvæmdanefnd þessara aðila, og voru kjörnir I hana Magnús Torfi ólafsson, ráðherra, formaður, Ólafur Ragnar Grímsson, prófessor, varaformaöur, Haraldur Henrýsson, sakadómari, ritari, Elias Snæland Jónsson, ritstjóri. Halldór S. Magnússon, viöskiptafræöingur, og Kristján Thorlacius, deildarstjóri. Flokksstjórnarfundur Samtakanna, sem áöur er nefndur, samþykkti aö mæla meö þvi við kjördæmisráö samtakanna, aö hvarvetna yröi boöið fram i nafni Samtakanna viö aljpingiskosningarnar 30. júni, en samþykktijafnframt, að kjördæmisráöin skyldu hafa frjálsar hendur aö þvi er varöar samstarf viö samtök og einstaklinga, sem vildu taka þátt i sllkum framboöum. Var strax fariö aö vinna aö samstarfi SFV og Mööruvallahreyfingarinnar i hinum ýmsu kjördæmum. Mánudaginn 20. mai stofnuðu vinstri jafnaöarmenn siöan Samtök jafnaöarmanna, og óskuöu þau eftir aöild aö samstarfi SFV og Mööru- vallahreyfingarinnar. Tók Kristján Bersi Ólafsson sæti i hinni sameiginlegu framkvæmdanefnd, og standa nú þessir þrir aðilar saman aö framboöum i nafni Samtaka frjálslyndra og vinstri manna, sem bjóöa fram I öllum kjördæmum landsins. Nokkrir menn innan SFV voru andvigir þessu samstarfi, og vildu frekar eiga kosningasamstarf viö Alþýöuflokkinn. Þegar ljóst var, aö hvergi var verulegt fylgi við þá stefnu innan Samtakanna, fóru sumir þessara manna úr flokknum og gengu I Alþýðuflokkinn. Það hefur hins vegar á engan hátt dregið úr baráttuþreki félagsmanna i SFV, sem nú ganga einhuga til næstu alþingiskosninga I bandalagi meö vinstrifram- sóknarmönnum og vinstri jafnaðarmönnum, undir forystu Magnúsar Torfa Ólafssonar, ráðherra. Þessi einhuga vinstri fylking leggur nú stefnu sina og baráttumál undir dóm kjósenda. Þaö er þeirra aö ákveöa, hvort afdráttarlaus jafnaöar- og samvinnustefna á aö veröa ráöandi afl 1 islenskum stjórnmálum, eöa hvort nýtt timabil ihaidsstefnu eigi aö fara i hönd. Augljóst er, aö án verulegs fylgis viö F-listann i komandi alþingis- kosningum, er útilokaö aö tryggja þingmeirihluta fyrir félagshyggju- stjórn. Sú staöreynd gerir val vinstri manna i landinu auövelt, hvar i flokki sem þeir hafa áöur staöiö. Framboðslistarnir í öllum kjördœniunum — sjá opnu

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/551

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.