Smásögur handa ungmennum - 01.02.1910, Qupperneq 3

Smásögur handa ungmennum - 01.02.1910, Qupperneq 3
hendur Iíka.< >Já, það hefir hann gjört,« sagði annar, »hann kailaði Davíð »Faríseann,« en jeg sagði honum, að hann hefði vaiið nafnið mjög óheppilega, því jeg get ekki sjeð, að hann eigi í nokkru sammerkt við þá náunga sem Jakob kennir hann við.« »Við skulum bera þetta mál undir skip- stjórann,« mælti stýrimaðurinn. »Hann hefir sagt mj er, að Davíð væri sá handlægnasti piltur, sem hann hefði haft í mörg ár. Komdu með okkur, Jakob, og ber þú fram áklögun þína við skipstjórann.« Jakob var súr á svip- inn, þegar hann kom í farrými skipstjórans, og gat ekkert sagt sjer til afsökunar. Skip- stjórinn sagði honum berlega, að Davíð leysti mjög vel af hendi alt, sem hann ætti að gjöra, og að hann h efði haft nákvæmar gætur á honum. Ennfremur sagði hann, að ef hann áreitti Davíð nokkurntíma framar, skyldi hon- um verða hegnt harðlega, og að hann slyppi í þetta sinn einungis fyrir bænastað Davíðs. Þetta kom fyrir þremur mánuðum eftir að Davíð kom um borð, og eftir þetta leið hon- um að sumu leyti betur en áður. Ungur há- seti, tvítugur að aldri, og sannkristinn maður, fjekk miklar mætur á honum, og brátt tókst með þeim hin ástúðlegasta vinátta. Oft lásu þeir Guðs orð saman, og einusinni sagði Davíð Marteini frá afa sínum, og ummælum hans um vitann, og sýndi honum ljósmynd- ina, og orð, sem skrifuð voru í biflíuna hans. Tíu mánuðir Iiðu. Skipið hafði farið á milli ýmsra hafna í Astralíu, og verzlað þar, en nú hafði skipstjórinn ákveðið að fara heim til Englands. í fyrstu fjekk skipið gott veður á heimleið- inni, en svo kom mikill stormur. Þá skemmd- ist partur af reiðanum, og einhver varð að fara upp til að gjöra við hann. Það var mik- ið hættuverk, því þó stormurinn væri mikið farinn að minka, var skipið á sífeldu ruggi. »Láttu mig fara, skipstjóri,« sagði Marteinn stillilega; »segið mjer hvað jeg á að gjöra, °g Jeg skal Ieysa það af hendi eins vel og jeg get.« — »Gott,« sagði skipstjórinn, um ieið og hann virti siglutrjeð fyrir sjer; »þú ert glöggskygn maður og handviss, en þetta er ekki auðvelt verk.« Að svo mæltu sagði hann Marteini hvernig verkið skyldi unnið. »Gefið mjer þriggja mínútna frest, herra minn«, sagði hann, og skundaði til Davíðs. »Líttu á, Davíð minn«, sagði hann í hálfum hljóðum; »hjer er utanáskrift móður minnar; ef mjer skyldi hlekkjast á, bið jeg þig að skrifa henni, og segja henni að Jesús hafi verið hjá mjer þegar jeg fór upp, og að jeg hafi verið sæll í Honum«. Svo kvöddust þeir með handabandi, og innan skamms stóð Mar- teinn aftur við hlið skipstjórans. Hann hlýddi nákvæmlega reglum þeim, sem honum voru settar; þar var enginn flýtir nje flaustur, en með stillingu og greinilegri hugs- un vann hann ætlunarverk sitt, og skips- höfnin dáðist mjög að því, hvað honum fórst það vel. En rjett í því hann ætlaði ofan, fjell stór holskefla yfir skipið, svo snögglega að Marteinn missti fótfestuna. Hann datt ofan á þilfarið, og var tekinn upp meðvitundarlaus. Skipstjórinn bauð að flytja hann inní farrými sitt, og allir fjelagar hans kepptust hver við annan að gjöra það sem þeir gátu fyrir hann, en það kvöld vissu allir að stundir hans voru þegar taldar. »Jeg hef svo miklar kvalir í höfðinu, þar sem jeg datt á það, og jeg er hálfringlaður*, sagði hann við Davíð, sem sat sorgbitinn hjá rúmi hans. »En mjer finnst jeg sjái ennþá vitann á myndinni þinni; jeg hugsa um það sem afi þinn sagði um hann, ogjegTiefi gott af því.« »Jeg skal sækja hana«, sagði Davíð stilli- Iega, og svo kom hann með hana. — »Nei, nei, það er einhver kynleg móða fyrir aug- um mínum, svo jeg get ekki sjeð greinilega«, sagði Marteinn, »en Guðs orð hefir sannarlega verið ljós á vegum mínum síðastliðin 5 ár, og nú dettur mjer í hug að Frelsari minn líkist einmitt vitanum þínum.« »Hvernig þá?« spurði Davíð blíðlega. »Hann varpar björtu ljósi á vötnin dimmu, sem mjer finnst umkringja mig á allar hliðarnú«, svaraði Marteinn seinlega. Davíð minntist þá orða Jesú: »Jeg er heimsins Ijós, hver sem fylgir mjer ,skal ekki ganga í myrkri, heldur hafa Iífs- ins ljós.« »Einmitt,« sagði Marteinn með veikri

x

Smásögur handa ungmennum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Smásögur handa ungmennum
https://timarit.is/publication/552

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.