Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.02.1935, Qupperneq 1
Ljós og Samhileikur
frá hinni helqu bók
„Send Ijós þitt og sannleika þinn, að
þau leiðbeini mér, að þau ieiði mig til
fjallsins þíns helga og tii bústaða
þinna“. (Dðnsk þýð.) Sálm. 43, 3.
Nr. 2
NÚTÍMINN OG BIBLÍAN
Sá sem hefur sannarlega löngun til að vita, að
hvaða tíma i sögu vorrar jarðar vér erum komnir, þarf
ekki annað en virða fyrir sér vora tima — virða þá fyrir
sér í sambandi við þá spádóma Biblíunnar, sem ræða
um „tima endisins“ og „hina síðustu daga“. Það er þá
auðvitað, að ef vér getum trúað Heilagri Ritningu, hljót-
um vér að sjá að „hinn mikli dagur“, þegar Jesús kem-
ur aftur, er mjög nálægur. Og sé þetta nú svo i raun
og veru, hversu áríðandi er þá sérhverjum, að vita
grein á þessu og búa sig undir það sem i hönd fer!
Vér skulum nú fhuga eitt og annað sem fyrir hefur verið
sagt um hina síðustu daga, og sem hefur rætzt svo ná-
kvæmlega, að augljóst er hverjum þeim, sem gefa vill
sannleikanum gaum.
Menta-öldin. Daníel spámaður segir, að á „tima
endisins" muni „þekkingin vaxa“. Dan. 12, 4. Og vist
er um það, að ef vér litum i kring um oss og virðum
fyrir oss yfirstandandi tima, munum vér sjá, að þekk-
ingin hefur margfaldast á öllum sviðum. — Mentunin er
orðin mjög mikil, stórkostlegar framfarir hafa orðið á
einum mannsaldri; og það er ánægjulegt að veita þvi
eftirtekt, að framfarirnar og útbreiðsla Bibliunnar hafa
haldist í hendur. Afarmikið hefur verið prentað og breitt