Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.03.1935, Blaðsíða 1
Liós og Sahimleikur
FRÁ HINNI HELGU BÓK
„Send Ijós þitt og sannleika þinn, að
þau leiðbeini mér, að þau leiði mig til
fjallsins þíns helga og til bústaða
þinna“. (Dönsk þýð.) Sáim. 43, 3.
Nr. 3
TÁKN TÍMANNA
„Að kveldi segiö þér: Qóðviðri, því að
himininn er rauður. Og að morgni: III-
viðri I dag, þvl að himininn er rauður
og dimmur. Um himinsins útlit kunnið
þér að dæma, en um tákn tlmanna
getið þér ekki dæmt“. Matt. 16, 2. 3.
Dað var ekki að ástæðulausu að Jesús talaði þessi
ásökunarorð, þvl að samtíðarmenn hans þektu ekki vitj-
unartíma sinn. Hinn himneski konungssonur var mitt á
meðal þeirra, talaði orð llfsins, gekk um kring og gerði
hvarvetna gott og uppfylti í einu og öllu spádómana um
Messías; en Qyðingarnir voru blindir og heyrnardaufir;
þrátt fyrir óteljandi tákn og undraverk, þektu þeir ekki
sinn tíma — gátu ekki dæmt um „tákn tímanna“.
Þetta sama hefur jafnan átt sér stað hjá slðari
kynslóðum og því miður á þetta sér einnig stað á vor-
um dögum; þeir eru fáir, sem kunna að dæma um tákn
tímanna, er sýna svo berlega, að vér erum komnir að
hinni slðustu kynslóð.
Vér skulum nú athuga hér röð spádóma, sem eng-
inn minni en sjálfur Kristur er höfundur að. Hann var
meiri öllum spámönnum, sem verið hafa I heimi þessum,
og þeir spádómar, sem komnir eru frá honum, eru mjög