Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Blaðsíða 1
Iiés og Sanmleikur
FRÁ HINNI HELGU BÓK
„Send ljós þitt og sannlcika þinn, að
þau leiöbeini mér, að þau leiði mig til
fjallsins þíns helga og til bústaða
þinna“. (Dönsk þýð.) Sálm. 43, 3.
PÁFAKIRKJAN
Nr. 6
SPÁDÓMUR DANlELS UM UPPRUNA, BLÓMGUN
OG FALL RÓMVERSK-KAÞÓLSKU KIRKJUNNAR.
Þegar Guð sýndi spámanninum Daníel
sögu veraldarinnar í nætursýn, táknaði hann
hin miklu heimsríki með ýmsum dýrum. Ljón
táknaði Babýlon, björn rílci Meda og Persa,
pardusdýr Grikkland, og fjórða dýrið, sem var
svo ógurlegt ásýndum, að spámaðurinn gat
ekki líkt því við nokkurt dýr, sem hann þekkti,
táknaði Rómaríkið. Þetta síðast nefnda dýr
hafði tíu horn, sem táknuðu þau tíu ríki, sem
rómverska ríkinu var skipt í á tímum Þjóð-
flutninganna miklu. Dan. 7, 1—7. Spámaður-
inn „athugaði hornin og sá þá, hvar annað
lítið horn spratt upp milli þeirra, og þrjú af
fyrri hornunum voru slitin upp fyrir það. Og
sjá, þetta horn hafði augu, eins og mannsaugu,
og munn, sem talaði gífuryrði“. 8. vers. Dan-
íel varð mjög starsýnt á þetta horn, og það