Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Síða 6

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Síða 6
50 Ljós og Sannleikur 1912, mátti heyra sama gainla guðlasts-hreim- inn, er hann sagði: „Maður þarí’ ekki annað en bara hugsa um það, hver páfinn er, til þess að elska hann. Páfinn er verndari trúfrœðinnar og siðgæðis- ins. Hann heldur fram þeim meginreglum, sem setja heiðursverðan blæ á heimilislífið, gerir þjóðirnar miklar og sálirnar heilagar. Hann er ráðgjafi þjóðhöfðingja og þjóða. Hann er höf- uðið og undir því höfði verður enginn harð- stjórnar var; því að hann er í staðinn fyrir Guð sjálfan. Hann er faðir í orðsins fyllstu inerkingu, og í honum er allt það sameinað, sem yður er heilagt og guðdómlegt og þess vert, að það sé elskað. . . . Það eru engin takmörk fyrir því, á hve víðáttumiklu svæði hann má og getur beitt valdi sínu.“ — Sam- kvæmt málgagni () Connels kardínála „The Pilot“, 21. des. 1912. Einn hinna nafnkunnustu doktora kaþólsku kirkjunnar, Alfonsus Liguori, sem árið 1838 var tekinn í dýrðlinga tölu (dáinn 1787), hef- ur skrifað bók um „tign og slcyldur prestanna“, og mun vera leitun á öðrum eins „gíluryrð- um“ og þeim, er hann notar, er hann talar um mikilleik prestanna, einkuin í sambandi við messufórnina. Eins og kunnugt er, kennir kaþólska kirkjan það, að prestarnir geti með fáum orðum breytt kveldmáltíðarbrauðinu (oflátunni), svo hún verði raunverulega líkami

x

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók
https://timarit.is/publication/555

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.