Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Page 7

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Page 7
Ljós og Sannleikur 51 Krists, og þessi kristur, sem presturinn hefur þannig framleitt eða skapað, er svo tilbeðinn. Vér skulum athuga hvernig Liguori lýsir þessu máli, er hann við og við vitnar til þess, sem aðrir kaþólskir kennimenn hafa sagt og skrifað: „Ó, hve dásamleg er tign prestanna!“ kall- íir St. Augustinus; „í höndum þeirra verður Guðs sonur lifandi gerður, eins og liann varð það í skauti hinnar sælu Maríu meyjar“. Því kallast prestarnir foreldrar Jesú Krists — svo kemst St. Bernhard að orði; því að þeir eru hin verkandi orsök til þess, að hann í raun- inni kemur fram í hinni vígðu oflátu. Presturinn getur þannig í vissum skilningi kallast skapari skapara síns. . . . Eins og það var nóg fyrir Guð að segja við sköpun heims- ins: „Verði það“, þá varð það, hann tal- aði, og það varð, — þannig er það nóg lýrir prestinn að segja: „Hoc est corpus meum“, og sjá, brauðið er ekki lengur brauð, heldur líkami Jesú Krists! — „Vald prestsins“, segir St. Bernandin af Sienna, „er vald Guðs; því ummyndun brauðsins krefst jafn mikils valds sem sköpun heimsins“ . . . „Eins og Guðs orð skapaði himin og jörð, þannig — segir St. Hieronymus — skapa orð prestsins Jesúm Krist. Eftir bendingu Guðs kom fram af engu bæði hin háa himinhvelfing og öll hin víð- áttumikla jörð; en ekki er það minna vald, sem birtist tneð hinum leyndardómsfullu orð-

x

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók
https://timarit.is/publication/555

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.