Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Qupperneq 9
Ljós og Sannleikur
53
eru stöðug eða til bráðabirgða, eru skuldbund-
in til að vinna eið að því að elta upp alla
villutrúarmenn, sem dæmdir eru af kirkj-
unni, eftir fremsta megni; og sá bráðabirgða-
höfðingi, sem ekki hreinsar land sitt af villu-
trúarmönnum, bannfærist. . . . Þeir sem taka
á sig krossinn til útrýmingar villutrúarmönnr
um, njóta sömu forréttinda og þeir, er taka
hann á sig til þess að frelsa landið helga“.
Dekretaler, V. bók, 7. tit.
Greifi v. Hoensbrech lýsir ré-ttilega hinum
blóðuga vegi páfavaldsins með svofeldum
orðum:
„Til beggja handa eru bálkestir og högg-
stokkar þúsundum saman. Með snarki og
braki teygja logarnir sig hátt í loft upp. Vér
vöðum í rennandi lækjum mannablóðs. Mann-
eskjur vefjast saman í logunum. Mannshöfuð
hrjóta niður á veginn. Píslarvottar eru dregn-
ir fram hjá oss; þeir eru orðnir því nær sjón-
lausir af hinni löngu veru í dimmum fangelsis-
klefum, limir þeirra eru afskræmdir af pynd-
ingunum, sáhr þeirra eru sundurkramdar og
þjakaðar. Hvílíkur vegur! Og þessi vegur tek-
ur engan enda! I endalausum hlykkjum ligg-
ur hann um öll hin vestlægu lönd“. Pynding-
ar, bál og sverð er orðið að postulum Krists-
trúarinnar!“ „Om Pavedömmet“, bls. 588—591.
„Hafa í hyggju að umbreyta helgitíð-
um og lögum“. Það er síst að undra þótt