Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1935, Qupperneq 10
54
Ljós og Sannleikur
slíkt vald hefði í hyggju að umbreyta Guðs
tímum og lögum. Postulinn Páll kemst þann-
ig að orði um þettá sama vald: „Glötunar-
sonurinn, hann sem setur sig á móti og rís
í gegn öllu því, sem kallast Guð eða helgur
dómur, svo að hann sezt í Guðs musteri og
kemur fram eins og hann væri Guð“.
2. Þess. 2, 3. 4.
Með því að umbreyta Guðs lögum, hafði
páfavaldið sest sem Guð í Guðs musteri; því
að enginn nema Guð sjálfur hefur vald til
að umbreyta hinum eilífu, himnesku lögum.
Athugið lögmál Guðs, eins og það er í Biblí-
unni (2. Mós. 20, 1 17), og berið það sam-
an við lögmálið eins og það stendur í ka-
þólsku spurningakveri; munurinn er strax auð-
sær. Stórfenglegasta umbreytingin, sem ka-
þólska kirkjan hefur gert, og það án nokk-
urrar fyrirskipunar frá Guðs hálfu, er það, að
afnema helgihald sabbatsdagsins og fyrirskipa
helgihald hins fyrsta dags vikunnar sem
hvíldardags.
Fáeinar tilvitnanir í kaþólsk rit nægja til
þess að sýna afstöðu kaþólsku kirkjunnar til
Guðs laga.
„Páfinn hefur svo mikið vald og myndug-
leika, að hann getur umbreytt jafnvel guð-
dómlegum lögum, þýtt þau eða útskýrt“.
„Páfinn getur umbreytt lögmáli Guðs, því
að vald sitt hefur hann ekki einungis frá