Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.06.1936, Qupperneq 1
hs
OS OO 9JÍIIEIKUR
FRÁ HINNI HELGU BÓK
„Send ljós þitt og sannleika þinn, að
þau Ieiðbeini mér, að þau leiði mig til
ijallsins þíns helga og til bústaða
þinna“. (Dönsk þýð.) Sálm. 43, 3.
Nr. 18
EÐLI MANNSINS.
HEFUR MAÐURINN MEÐPÆDDAN ÓDAUÐLEIKA?
„Sú sálin, sem syndgar, hún skal deyja“.
Esek. 18, 4.
„Konungur konunganna og Drottinn drottn-
anna. Hann sem einn hefur ódauSleika“.
1. Tíni. (i, 15. 1().
Efni það, sem í þessu nr. af Ljósi og sannleika er hyrj-
að að ræða, sem sé efnið viðvíkjandi dauðanum og lífinu, er
mál, sem mennirnir hafa brotið heilann um i þúsundir ára,
jafnt heiðinginn sem hinn kristni. Mörg eru þau ritverk, er
samin hafa verið um þetta á ýmsum tímum og margar eru
getgáturnar og hugmyndirnar því viðkomandi. En það er
aðeins einn, sem getur ráðið „gálu dauðans", liann, sem
hefur hf allra skapaðra skepna i hendi sér og einungis í
hans orði fáum vér rétta svarið við hinum mörgu spurn-
ingum vorum.
Biblían kennir eklcert um það, að maðurinn sé ódauðleg-
ur að eðlinu til. Þar á móti lcallar hún manninn „dauðlegan“,