Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.09.1936, Blaðsíða 6

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók - 01.09.1936, Blaðsíða 6
178 Ljós og Sannleikur Gehenne, sem kemiir 12 sinnum fyrir í Nýja-Testament- inu, merkir aftur á móti hinn væntanlega hegningarstað, eldsdíkið, þar sem óguðlegir verða brenndir, eftir að dóm- ur þeirra hefur verið kveðinn upp. í „Kirkeleksikon for Norden“ segir svo: „Biblíuþýðingarnar ættu að gera grein- armun á orðinu Hades (í Gamla-Testamentinu Scheol), sem þýðir dánarheimar, og orðinu Gehenna, sem þýðir lielvíti". 11. bindi, bls. 177. Orðið Gehenna er komið af Hinnomssonar-dal, sem er dalur fyrir utan Jerúsalem, þar sem allt af logaði eldur til þess að brenna hræ og óþverra frá borginni. har voru einn- ig brennd lík morðingja og annarra glæpamanna, og þar færðu Gyðingar Molok fórnir á tíma fráfallsins (2. Kron. 28, 3; 33, (i; Jer. 7, 31). Þessi staður var vel við eigandi tákn- mynd eldsdíkisins, sem í fyllingu timans á að eyða hinum óguðlegu, og sem ekki nuin skilja eftir af þeim „rót né kvist“, heldur gereyða þeim. Ekki skyldi maður strax láta sér detta i hug hegningar- staðinn í hvert skipti sem orðið „helvíti" kemur fyrir; því að í mörgum tilfellum er það þýtt úr orði, sem táknar hvíld- arstað hinna framliðnu — gröfina. Einungis þegar það er þýtt úr orðinu „Gehenna", á það nokkuð skylt við liegning- arstað, en það cr mjög mikil fjarstæða að vilja gera úr því eilifan hegningarstað eilífan kvalastað. Gehenna var eyðileggingar- og tortímingar dalur og er því notaður til að tákna með eldsdíkið, er mun eyða hinum óguðlegu á þcim tíma, þcgar jörðin og allt, sem á henni cr, verður upp hrennt. Um það, hvernig Kristur notaði orðið Gehenna, er hann talaði við og til Gyðinga, segir séra Farrar á þessa leið:

x

Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljós og sannleikur frá hinni helgu bók
https://timarit.is/publication/555

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.