Lítið ungsmannsgaman - 01.01.1852, Side 14
14
þar lengur, eptir því glaftnaði meir yfir honum,
og ljettist honum fyrir brjósti. Og þegar hann
varft loksins að fara ut úr herberginu til að af-
greiða manninn, var liann orðinn fullkomlega
hress, svo að glaðværðin skein út úr honum,
þegar hann kom aptur til fjelaga sinna. Nú
þykir mjer vænt um, vinur minn! kallar þá Lút-
er á móti honuni, jeg sje það á því hvað þú
ert glaðlegur í bragði, að þú hefur fengið góð
tiðindi. Já, bróðir minn! svarar Melankton,
jeg lilustaði á bæn saklausra barna, og þá flugu
mjerí hug og styrktu lijarta mitt þessi orð ritn-
ingarinnar: „af munni barna og brjóstmylkinga
hef jeg mjer lofgjörð tilbúið*. .Teg hef fengiö
að kalla nýjan og öruggan huga. Vjer skulum
nú allir treysta bjálp alniáttugs guðs, og örugg-
ir halda áfram verki voru!
7. Fátœkur konungur.
Hinrik, þriðji var 11 ára gamall, þegarhann
tók við konungdómi yfir Kastiliu á Spáni 1393.
Meðan hann var barii, höfðu ýmsir höfðingjar í
landinu haft völdin á hendi fyrir liann. En
þegar liann gat sjálfur farið að skipta sjer af
stjórninni, þá varð hann þess fljótt var, að