Sjómannadagsblaðið - 04.06.1939, Blaðsíða 83
SJÖMANNADAGSBLAÐIÐ
35
Sex af þátttakendum 1 stakkasundinu
Að því loknu hélt Skúli Guðmundsson at-
vinnumálaráðherra snjalla ræðu, þar sem hann
lýsti lífi og starfi sjómanna, hve mikilsvert það
væri fyrir þjóðina og hve mikið traust hún
bæri til þeirra. Þegar hann hafði lokið máli
sínu lék hljómsveitin: ,,Ó, guð vors lands.“
Þessu næst hélt mannfjöldinn niður að höfn,
því þar átti að fara fram keppni í sundi og
róðri. Var fyrst þreytt 100 metra stakkasund;
9 þátttakendur voru skráðir, en einn fatlaðist
frá. —
Fyrstur að markinu varð Jóhann Guð-
mundsson af b.v. Hilmi (2 mín. 59,7 sek.),
annar Vigfús Sigurjónsson af b.v. Garðari (3
mín., 1,4 sek.) og þriðji Loftur Júlíusson af
b.v. Baldri (3 mín., 4,5 sek.). Verðlaunagripur
í þessari íþrótt var Stakkasundsbikar Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og auk þess fengu
þrír fyrstu mennirnir verðlaunapening úr silfri.
Að loknu stakkasundinu fór fram kappróður,
sem 11 skipshafnir tóku þátt í. Róið var á björg-
Sigurvegarinn í stakkasundinu.
unarbátum; vegalengdin var um það bil 750
metrar og voru 6 ræðarar á hverjum báti auk
stýrimanns. Skipverjar á b.v. Hilmi urðu fyrst-
ir að markinu (3 mín., 58,3 sek.), næstir voru
skipverjar á b.v; Agli Skallagrímssyni (4 mín.,
Stakkasundsbikar Sjómannafélaga Reykjavíkur.