Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Síða 46

Sjómannadagsblaðið - 07.06.1942, Síða 46
26 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ I Grímur Oorkelssorr. Ferð til SuSur-Afríku 5 Snemma í júnímánuði árið 1920 lét vöru- flutningaskipið „Eastern Crag“ úr höfn í New York. Var förinni heitið til hafna í Suður- Afríku, en auk þess hafði skipstjórinn rétt til að fara til hvers þess staðar, eða hverrar þeirr- ar hafnar í heiminum, sem honum þóknaðist, svo framarlega, sem það tæki ekki lengri tíma en eitt ár. Að ári liðnu, eftir að ferðin var hafin, gat hvaða skipverji sem var krafist afskráning- ar úr skiprúmi og frírrar ferðar til lögskrán- ingarstaðarins. Kom það stundum fyrir á Band’aríkjaskipum, að menn voru skráðir á Atlandshafsströndinni, en síðan afskráðir á Kyrrahafsströndinni, þegar ráðningartíminn var útrunninn, og þá auðvitað sendir í Pull- mannsjárnbrautarvagni þvert yfir meginland Ameríku sér algerlega að kostnaðarlausu, en fyrir reikning viðkomandi skipafélags. Þótti mjög eftirsóknarvert meðal sjómanna að lenda í slíkum æfintýrum, þar eð þá var hægt að lifa eins og greifi í nokkra daga á annara kostnað. Skipið, sem ég var kominn um borð í, var um sex þúsund smál. stórt og hafði legið uppi um lengri tíma, eins og mörg þeirra skipa, sem Bandaríkin byggðu í síðasta stríði. Þegar því lauk höfðu Bandaríkin mjög stóran flota kaup- skipa af ýmsum gerðum og stærðum. Eftir stríðið jókst framboð flutningaskipa af ýmsum þjóðernum, en flutningaþörfin minnk- aði stórum. Afleiðingin varð sú, að Bandaríkja- stjórn varð að taka skip úr umferð í hundraða- tali og leggja þeim upp. Þar sem þau lágu í stór- hópum á afviknum stöðum, þessi aðgerðarlausu skip, nutu þau sáralítillar umhirðu og viðhalds, og eina ráðið til þess að varná því að þau dröfn- uðu niður, var að láta þau öðru hvoru fara í ferðalög, en leggja öðrum upp í staðinn. Engin sæld þótti að lenda um borð í þessum skipum, þegar þau komu úr uppilegu, því að verkefnið var að þvo af þeim hinn gróm- tekna óþrifnað, sem á þau hafði safnazt, með- an þau lágu aðgerðarlaus, og koma öllu í lag, sem úr lagi var gengið. Þegar skipin komu í heimahöfn að endaðri ferð, komu eftirlitsmenn stjórnarinnar venju- lega um borð og athuguðu handaverk skipverja. Þætti þeim útlit skipsins'bera vott um slæleg vinnubrögð, voru allir yfirmennirnir tafarlaust reknir. Hásetar og aðrir undirmenn biðu sjald- an eftir slíku, þeir fóru flestir af sjálfsdáðum, þegar búið var að binda. Afleiðingin af öllu þessu varð meðal annars sú, að vinnuharka á þilfari var mikil, meðan ferðin stóð yfir, sérstaklega þó meðan verið var í hafi og hægt var að beita sjólögunum óskorað. „Eastern Crag“, eða „Kletturinn í austri“, sem ég var nú kominn um borð í, hafði legið lengi uppi, enda var útlit skipsins ofan þilja langt frá því að vera aðlaðandi. Hvar sem litið var blasti við eintómur óþverri. Öskuhaugur mikill hafði safnazt á framþilfarið, svo að hægt var að ganga stytztu leið fram af stjórnpalli og niður á þilfar. Lá nú fram undan að ryðja þessu ölju fyrir borð, strax og hafnsögumaður hafði yfirgefið skipið. . Á meðan haldið var niður Hudson-fljótið og áður en skilað var hafnsögumanninum, notuð- um við hásetar tímann, til þess að skipta með okkur verkum. Við vorum tíu talsins og skyldu sex ganga sjóvaktir, tveir á hverri vakt, en þær voru þrískiptar. Fjórir hásetar skyldu vinna á daginn, vera dagmenn. Skyldi nú dregið um, hvað af þessu menn skyldu gera. Dregið vjf þannig, að einn maður tók jafn margar eldjtyp- ur og menn voru margir, sem draga skyjfðu. Hausar voru brotnir af nokkrum eldspýtáínna. • Þeir, sem þær hrepptu, skyldu vera dagmenn. AíÉf lokinni þessari athöfn kom í ljós, að ég hafði hlotið stöðu á 2. stýrimannsvaktinni, en sú vakt er á tímanum frá kl. 12—4, bæði á nóttu og degi. Þessari vakt stýrði gamall Svíi, sem búinn var að sigla um 30 ár víðs vegar út frá Kyrra-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Sjómannadagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.