Sjómannadagsblaðið

Árgangur

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1963, Blaðsíða 39

Sjómannadagsblaðið - 03.06.1963, Blaðsíða 39
 Sigling inn Eyjafjörð Davíð Stefánsson Loks eftir langan dag lít ég þig, helga jörð. Seiddur um sólarlag sigli ég inn Eyjafjörð. Ennþá á óskastund, opnaðist faðmur hans. Berast um sólgyllt sund söngvar og geisladans. Verja hinn vígða reit Varðtröllin klettablá, máttug og mikilleit, Múlinn og Gjögratá. Hljóti um breiða byggð blessun og þakkargjörð allir, sem tröllatryggð taka við Eyjafjörð. Blika sem brennheitt stál björgin og djúpin köld. Bjart var um Austurál oftar en þetta kvöld. Blástur frá bláum hval blandast við fuglaklið. Blœvakið bylgjuhjal boðar mér drottins frið. Ástum og eldi skírð óskalönd birtast mér. Hvílíka drottins dýrð dauðlegur maður sér! Allt ber hér sama svip, söm er hin gamla jörð. Hœgara skaltu, skip, skríða inn Eyjafjörð. Allt það, sem augað sér, œskunnar hörpu knýr, syngur og segir mér sögur og cevintýr. Mild ertu, móðir iörð, Margt hefur guð þér veitt. Aldrei ég Eyjafjörð elskaði nógu heitt. Þó finnst mér ást mín öll, unaður minn og þrá tengd við hin fögru fjöll, fjörðinn og sundin blá. Hvar sem ég flótta fer friðlaus um ókunn lönd, bið ég til bjargar þér, blessaða Galmarsströnd. Bœnin og barnsins trú betri hinn týnda son. Gleðin og guð og þú gefa mér nýja von. Stráin, sem blœrinn braut, blessar þin líknarhönd. Mjúk er sem móðurskaut moldin á Galmarsströnd. Faðmaðu, blíði blœr, byggðir og sundin víð. Sé ég hvar bóndabœr brosir í vesturhlíð. Þó komi ég sár frá sœ, sekari en áður fyr, á þessum bóndabœ bíða mín opnar dyr. Áfram — og alltaf heim, inn gegnum sundin blá guðirnir gefa þeim gleði, sem landið sjá. Loks eftir langan dag leit ég þig, helga jörð. Seiddur um sólarlag sigli ég inn Eyjafjörð. 24 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Sjómannadagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.