Sjómannadagsblaðið - 03.06.1963, Blaðsíða 52
1 J£g ' ' V/|
tl.
Sjávaraf linn 1962
í sjávarþorpunum víðsvegar um land leggur fólkið
margoft nótt með degi, þegar fiskiskipin koma með afla
að landi til verkunar. Ungir og gamlir keppast við að
koma aflanum í verðmæti, frystingu, söltun, herzlu o. fl.
Sjávaraflinn hefur allt frá fyrstu tíð verið helzta
verzlunarvara þjóðarinnar í viðskiptum við aðrar þjóð-
ir og meginstoð velmegunar hennar. Því öflugri sem
skipaflotinn hefur verið, því betur hefur hagur hennar
blómgazt. Hafi sjávaraflinn brugðizt, fylgir í kjölfar
þess vanefni og volæði, gefist góður sjávarafli, fylgir
vaxandi þjóðlíf og velsæld fólksins í landinu.
Hinir yngri af núlifandi kynslóð í landinu þekkja
lítið til annars en efnahagslegrar velsældar, og gera sér
varla eins vel ljóst, að kjarninn að baki hagsældar þjóð-
arinnar er sjávaraflinn, sem fiskiflotinn flytur að landi.
Fiskafli okkar Islendinga er svo stórfenglegur, að
helzt gengur ævintýri næst og þar er þorskurinn og
síldin konungur og drottning.
Árið 1961 var heildarfiskaflinn 345,474 tonn og út-
flutningsverðmæti 2,867 milljónir króna, eða 2,8 millj-
arðar króna. Og síðastliðið ár, 1962, varð heildaraflinn
418,022 tonn og útflutningsverðmæti hans 3,499 milljón-
ir króna, eða 3,5 milljarðar íslenzkra króna.
Það er bæði fróðlegt og nauðsynlegt fyrir almenning,
að þekkja nokkur skil á, hvernig þessi miklu verðmæti
skiptast innbyrðis og hvað hver liður gefur af sér af
fjármunum, sem sjá má af meðfylgjandi skýrslu frá
Fiskifélagi Islands:
38 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ