Alþýðublaðið - 01.06.1923, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 01.06.1923, Blaðsíða 2
AL&YÐ0SLAÐSD Q Gerhveiti er bezt hjá Kangfélavinu. © EH m m m m m m m m m m m m m m m m m m m LUCANA. Að gefnu tilefni hefir verksmiðjan, er býr til Lucana vindlinga, Teofani & Co, beðið Landsverzlun að auglýsa eítirfarandi vottorð: Enska efnarannsúknarstofan (British Analytical Control). Skýrsla um rannsókn á sýnishorni af Lucana 66 vindlingum, framleiddum at Ht. Teofani & Co., London. Brezka etnarannsóknarstofan vottar hér með, að ofangreindir vindlingar ásamt sýnishorn- um, keyptum í smásöiu, hafa verið rannsak- aðir með algerlega fullnœgjandi árangri, Vindlingarnir eru búnir til úr hreinum tóbaks- laufum og reyndust algerlega lausir við skað- leg eða annasleg efni af nokkru tagi. F. C. Carr, skrifstofustjóri. mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm m m m m m m m m EH EH EH EH m m m m m m m m m m m EH m m m m m m Breyiing á kosníngalðgnm. Á nýafstöðnu Alþtngi voru samþyktar breytlngar á lögunum um atkvæðagreiðslu fjarstaddra manna við alþingiskosningar. Þau lög voru sett 1914. Eftir þeim lögum er sjómönn- 'um heimilt að kjósa úti á skip- um, og þeim og einnig öðrum, sem ferðast burt úr kjördæminu fyrir kjördag, er heimilt að kjósa skriflega hja bæjarfógeta í kaup- stöðum og sýslumönnum eða hreppstjórum í sveitum. Hins vegar hafa þeir, sem vegna líkamsbilunar eða van- heilsu eigi komast á kjörstað, ekki haft rétt til þess að greiða atkvæði heima hjá sér. En sá réttur er þeim veittur með þess- um breytingum á lögunum. En sanna skulu þeir fortölí sín með vottorði læknis í kaupstöðum og hreppi, sem læknir býr í, en annars með vottorði Iæknis eða hreppstjóra. í sveitum mega menn, sem þannig er ástatt um, greiða at- kvæði tveim dögum íyrir kjör- dag, og skulu þeir þá senda atkvæði sitt til bæjarfógeta eða hreppstjóra þar, sem þeir eru á kjörskré. En ef kjósandi á heima á kjörstað, má atkvæðagreiðsla ekki fram fara fyrr en næsta dag á undati kjördegi. Hér í Reykjavík geta því sjúkir menn og þeir, sem ekki eru færir um að komast á kjör- fuudinn vegna líkarnsbilunar, kosið heima hjá sér daginn fyrir kjördag. En til þess þarf, eins og áður er sagt, vottorð læknis. Að því vottorði fengnu skrifar kjósandi á seðii bókstaf þess lista, sem hann ætiar að kjósa (annars staðar, þar sem ekki er hlutfallskosning, skrifar kjós- andi á seðiiinn nafn þess manna eða þeirra manna, sem hann kýs).' Ef kjósandi getur ©kki vegna sjónleysis eða annarar líkams- bilunar sjálfur skrifað á kjör- soðilinn, þá tiinefnir sá læknir (eða hreppstjóri). er vottorðið gefur, nærstaddan kjósanda til þess að veita honum aðstoð til að kjósa, og á vottorðsgetandi að jafnaði að tilnefna þann, sem kjósandi óskar. Kjörseðillinn er því næst lát- inn í umslag, en á það umslag er* ekkert litað. Síðan undirritar kjósandi (eða sá, er honum veitti aðstoð) fylgibréfið, og er það og umslagið með atkvæðaseðlin- um látið í þar til gert umslag og síðan sent til kjörstjórnar í kaupstaðnum eða hreppnum. Þegar veitt er aðstoð til þess að kjósa, skal þess getið í fylgibréfinu. - * Hrafn. Áfgreiðsla blaðsins - er í Alþýðuhúsinu við Ingólfsstræti. Sífflji 988. Auglýsingum sé skilað fyrir kl, 8 , að kveldinu fyrir útkomudag þang- að eða í prentsmiðjuna Bergstaða- stræti 19 eða í síðasta lagi kl. 10 útkomudaginn. Áskriftaigjald 1 króna á-mánuði. Auglýáihgavérð 1,50 cm. eindálka. Útsölumenn eru beðnir að gera skil afgreiðslunni að minsta kosti ársfjórðungslega,

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.