Sjómannadagsblaðið - 01.06.1975, Blaðsíða 67
Eitthvað fyrir ferðalanga í Fœreyjum:
HVALUR FASTUR
í SKÁLAFIRÐI
Frændum okkar Færeyingum
leggst alltaf eitthvað til. Um leið
og þeir opna nýja og góða leið til
ferða að og frá eylöndunum hér
i norðri, hafa þeir heima í Fær-
eyjum fengið nýtt fyrirbrigði,
sem liklegt er til að lokka að
ferðamenn.
Þetta er grfðarlega stór búr-
hvalur, sem kominn er i Skála-
fjörð og syndir þar hring eftir
hring. En ekki kemst hann út,
og er þar um að kenna hugvit-
samlegu sköpulagi skepnunnar.
í Skálafirði háttar svo til, að
þegar komið er af hafi grynnist
fjörðurinn smátt og smátt, unz
hann er orðinn örgrunnur, en þá
kemur skyndilega marbakki og
innan hans er fjörðurinn aftur
djúpur. Þarna komst búri
klakklaust inn, en þegar hann
ætlar út aftur, gefa hin með-
fæddu bergmálstæki hans til
kynna, að þarna sé þverhniptur
farartálmi, sem hann komist
ekki fram hjá.
Og hvalsauminginn á ekki
annars úrkosti en svamla þarna
hring eftir hring og éta það sem
fjörðurinn hefur upp á að bjóða.
Sigurd Simonsen, ferðaskrif-
stofumaður frá Þórshöfn, sem
sagði blaðamönnum frá þessu á
fréttafundi vegna Smyrils,
sagði einnig, að fyrir hefði kom-
ið, að grindhvalavöður hefðu
króazt inni i Skálafirði af sömu
orsökum.
Tókst
aðná
150 þús.
kr. árs
sparnaði
FJÓRIR Vélskólanem-
ar voru fengnir til að
stilla olíukynditæki í
fjölbýlishúsi einu í
Hafnarfirði í síðustu
viku. Tók verkið tvær
og hálfa klukkustund.
Tókst nemunum að
auka nýtingu tækj-
anna um 4—5% en það
þýðir 150 þúsund
króna sparnað fyrir
íbúa hússins á ári. I
húsinu eru 63 fbúðir,
og er ein sameiginleg
kyndistöð fyrir þær
allar.
Sveinn Jónsson
Verkstceði: Breiðagerði 7 - Reykjavík.
Sími 82730 (2 línur).
FRYSTIVÉLAR - uppsetning og eftirlit.
TIL ORKUSPARNAÐAR ÞAÐ NÝJASTA:
Eigum fyrirliggjandi loftkœlda eimsvala til að nýta varmaflutning
kœlivélanna, til upphitunar í vinnusölum og með því móti að lœkka
stórlega upphitunarkostnað.
Höfum fyrirliggjandi varahluti í margör tegundir
kœlivéla. — Byggjum upp sjólfgœslukerfi, sniðin eftir
þörfum í afkastamöguleikum, í bjóðageymslur og
fiskilestar. — Byggjum laus frystikerfi fyrir rœkju
og skelfisk.
Höfum fyrirliggjandi reimdrifnar skiptivélar fyrir R-12,
22 og 502 kœlimiða, allt að Ú0.000 kg/cal
við -r- 10 til 25°C. — Getum ennfremur útvegað með
stuttum fyrirvara hraðfrystitceki f mörgum stœrðum.
LEITIÐ TÆKNILEGRA UPPLÝSINGA. - LEITIÐ TILBOÐA.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 57