Sjómannadagsblaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 43
KvenfólkiS í Hafnarfirði hefur ávallt sýnt sjómannadeginum mikinn SkemmtiatriSi sjómannadagsins hafa alltaf verið mjög vel sótt.
áhuga og m. a. keppt í kappróðrinum. Ljósm.: Herdís GuSmundsdóttir.
Skipstjóra- og stýrimannafélaginu
Kára í Hafnarfirði, en þessi félög
hafa alltaf haft náið samstarf um
framkvæmd dagsins. Einnig hefur
kvennadeild Slysavarnafélagsins
Hraunprýði lagt þar hönd á plóginn.
Mjög mikil vinna liggur í undir-
búningi dagsins og eru það allt
sjálfboðaliðar, sem inna hana af
höndum. Það sem einna erfiðast
hefur reynst, er að útvega mann til
að tala fyrir munn sjómanna á úti-
skemmtuninni, en alltaf hefur það
bjargast, þó stundum hafi verið lítill
tími til stefnu að semja ræðuna.
Dagurinn hefst á því að kl. 8.00
f.h. eru fánar dregnir að hún um
allan Hafnarfjörð og bátar í höfn-
inni skreyttir með merkjaflöggun-
um. Um kl. 9.00 fh. er byrjað að af-
greiða merki dagsins og Sjómanna-
dagsblaðið til sölubama, en sala
merkja og Sjómannadagsblaðsins
eru helsta tekjulind dagsins og ríð-
ur á miklu að hún takist vel, því
allmikill kostnaður fylgir hátíða-
haldi sem þessu. Um kl. 10.00 f.h.
er hafnfirskum bömum boðið í
skemmtisiglingu út á fjörðinn. I
þessari siglingu taka þátt 3—4 bát-
ar. Hafa börnin haft mjög gaman af
og mikill spenningur meðal þeirra,
þegar bátamir fara í kappsiglingu
á leið til lands. Eftir hádegi hefst
hin eiginlega hátíðadagskrá með því
að gengið er í kirkju og hlýtt á
messu. Að henni lokinni er gengið
í skrúðgöngu, við undirleik Lúðra-
sveitar Hafnarfjarðar, vestur að
húsi Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar.
Þar er útihátíðin sett og minnst
drukknaðra, frá síðasta sjómanna-
degi. Þar næst flytur fulltrúi frá
Hraunprýði, kvennadeild Slysa-
varnafélags íslands í Hafnarfirði,
ávai-p og þar á eftir talar fulltrúi
sjómanna, sem a. m. k. flest hin
síðari ár hefur verið einhver starf-
Helgi Einarsson skipstjóri talar fyrlr hönd sjó-
manna. Ljósm.: Herdís Guðmundsdóttir.
andi sjómaður frá Hafnarfirði. Það
hefur verið venja í Hafnarfirði eins
og víða annars staðar á landinu að
þakka öldruðum sjómönninn sem
eiga langa starfsævi að baki, unnin
störf í þágu lands og þjóðar með
því að sæma þá heiðursmerki sjó-
mannadagsins úr silfri. Venjulega
eru 3—4 öldungar sæmdir þessu
heiðursmerki af sjómannasamtök-
unum í Hafnarfirði.
Þegar lokið er ræðuhöldum og
heiðrun aldraðra, þá eru tekin fyrir
ýmiskonar skemmtiatriði s. s. kapp-
róður, koddaslagur og ef til vill eitt-
hvað fleira, eftir því sem efni standa
til á hverjum tíma. Kappróðurinn
vekur alltaf mikla athygli, en senni-
lega vekur koddaslagurinn mesta
athygli barna og unglinga. Nokkur
undanfarin ár hefur ekki tekist að
fá sjómenn til að keppa í mörgum
þeim greinum, sem viðeigandi væri
að sjá á sjómannadaginn s. s. víra-
splæsi, netabætingu og ýmsu fleiru,
en til þess liggja ýmsar orsakir eins
og áður hefur verið mikið að.
Deginum lýkur svo með því að
haldið er sjómannahóf í Skiphól, þar
sem á borðmn er góður matur og
dýrar veigar og danSað til kl. 2.00
e. m., en yngri kynslóðin fær sér
snúning í Alþýðuhúsinu.
G. G.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 33