Sjómannadagsblaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 47
bátsferð með yngstu borgarana. En
ekki gat orðið af því né öðrum úti-
hátíðahöldum vegna veðurs, en við
höfnina áttu að vera þessi hefð-
bundnu skemmtiatriði, svo sem
stakkasund, koddaslagur og slagur
á kaðli, sem strengdur er á milli
tveggja báta. Síðan ætlaði Björgun-
arsveitin Björg að sýna björgun
með línuflugtækjum.
Sjómannamessa var í Suðureyr-
arkirkju kl. 14. Kvenfélagið Ársól
seldi kaffi í matsal Fiskiðjunnar
og notaði fólk sér það óspart.
Inniskemmtun hófst í Félagsheim-
ilinu kl. 17.
Aðalræðu dagsins flutti Þorsteinn
Matthíasson rithöfundur, aldraður
sjómaður, Vilhjálmur Magnússon,
var heiðraður. Síðan var leikþáttur,
gamanvísur og fegurðarsamkeppni.
Þar komu fram allar fegurstu
..meyjar11 sýslunnar og sigraði
Hörður Smári Hákonarson með
miklum yfirburðum.
Margt fleira var til skemmtunar.
Síðast en ekki síst var dansleikur
frá kl. 22 til kl. 03 um nóttina.
Árni Pálsson,
Guðni Einarsson.
Lagt af stað í róðurinn. Þarna sést sveit vél-
smiðjunnar. (Ljósm.: G. Hlöðversdóttir.)
Sjómannadagshátíðahöldin 1976
hófust á laugardag kl. 20 með kapp-
róðri. Þar kepptu sveitir frá Vél-
smiðjunni, Fiskiðjunni Freyju m/b
Kristjáni Guðmundssyni og m/b
Sigurvon. m/b Sigurvon sigraði í
annað skiptið í röð, en þá vann hún
bikarinn af Vélsmiðjunni.
Þessi bikar var gefinn af Fiskiðj-
unni Freyju, og vinnst til eignar
með sigri þrisvar í röð eða fimm
sinnum alls.
Strax eftir kappróðurinn fór fram
Sjómannadagurinn
á Suðureyri
knattspyrnukeppni milli karla í
flökunarsal Fiskiðjunnar og kvenna
í pökkunarsal og sigruðu konurnar
með miklum yfirburðum. Dómara-
flautan var stór og mikil skipsbjalla
og var henni klingt óspart.
Ekki var fleira á dagskrá það
kvöld, en hátíðahöldin áttu að
hefjast að nýju kl. 10 á Sjómanna-
dagsmorguninn með því, að fara í
Súgandafjöröur.
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 37