Sjómannadagsblaðið - 01.06.1977, Blaðsíða 58
Skipstjóra- og stýrimannatal
Flestar stéttir og félög hafa nú þegar gefið út félagatöl,
og er ekki vansalaust að skipstjóra- og stýrimannastéttin
liggi óbætt hjá garði. Of lengi hefur dregist að hrinda
þessu í framkvæmd og eftir því sem tímar líða verður
erfiðara um gagnasöfnun.
Áætlað er að þetta nái til þeirra er tekið hafa próf frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík, er stofnaður var 1891,
ásamt smáskipaprófum þeim er Fiskifélag íslands byrjaði
með 1918, en sem var yfirtekið af Stýrimannaskólanum
1938.
Skipstjórar og stýrimenn eru vinsamlegast beðnir að
létta undir með gagnasöfnuninni, með því að senda sem
fyrst upplýsingar, eða nafa samband við skrifstofuna.
Skrifstofa Skipstjóra- og stýrimannatals er að Sólvalla-
götu 74, sími 14219. Pósthólf 1373 eða 74, Reykjavík.
ÚTGERÐARMENN
HF. HRINGNÓT
HAFNARFJÖRÐUR ICELAND
er sameign sex útgerðarfyrirtækja.
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
ÖRUGG ÞJÓNUSTA
★ Setjum upp nýjar síldar- og loðnunætur, loðnutroll og önnur
veiðarfæri eftir beiðni.
★ Góð þjónusta, þurrkun og geymsla á nótum og togveiðarfærum.
★ Teiknum og útvegum tilboð í öll venjuleg veiðarfæri, svo sem
nætur og troll.
★ Alls konar efni jafnan á lager.
HF. HRINGNÓT
HAFNARFIRÐI
Símar: 51688, 52699 vinnutíma — 42078, 51134 heima.
48 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ