Sjómannadagsblaðið - 01.06.1990, Qupperneq 75
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
73
fjölskyldum þeirra. Þar er samhugur-
inn mikill og engar guðsþjónustur á
ég sterkari og kærari í minningunni
en einmitt þessar. Það er ekki það,
sem sagt er, sem gerir útslagið heldur
hinn sterki samhugur og lotning fyrir
skaparanum, sem þar ríkir.
Þessar stundir eiga sér undirtón
þeirrar sögu sem sjómennskan hér
við land hefur skráð. Þetta er saga
átaka, áræðni og aflasældar. Einnig
er þar skráð saga ógæfta og afla-
brests. En að baki þessu öllu er
meitluð í undirvitund okkar saga
þeirra atburða, sem vekja með okkur
sárar tilfinningar. Saga ósigra í bar-
áttu við Ægi konung, saga slysa og
óhappa.
Sú saga er skráð en hún er sjó-
mönnum ekki töm til umræðu, því
hún vekur með þeim minningar um
vinina sem horfið hafa.
Engu að síður er hún þeim ofar-
lega í huga. og í dag á 50 ára afmæli
sjómannadagsins á Akureyri þá hef-
ur verið afhjúpaður minnisvarði um
drukknaða og týnda. Minnisvarði,
sem er verk sjómanna, útgerðar-
manna og fjölskyldna þeirra.
Oft hefur verið talað um slíkan
varða en ekki orðið úr fyrr en nú og
minning vina sem hurfu í hörmuleg-
um slysum voru hvati þessa verks.
Einn fyrir alla, allir fyrir einn,
þannig stendur þessi varði. Þannig
mun hann tala í látleysi sínu og
minna okkur um leið á þá, sem geng-
ið hafa á vit þeirrar eilífðar sem Guð
einn getur gefið.
Minnisvarðinn segir frá trú, von og
kærleika. Trúnni í því að hann bendir
til himins, voninni, sem táknuð er í
ankerinu og kærleikanum í orðum
Jesú, sem þar standa: „Ég er uppris-
an og lífið. Sá, sem trúir á mig mun
lifa þótt hann deyi“.
Efni varðans er bjargið, tákn um
þann grundvöll kristinnar kirkju,
sem hún er reist á.
A slíkum stundum fer ekki hjá því,
að sæki á hugann myndir og minning-
ar þeirra hetja og drengskapar-
manna, sem búin hefur verið hvíla í
hinni votu gröf.
Sú vitund minnir okkur á hættur
hafsins og eðli sjómannastarfsins.
Að eiga sitt starf í baráttu við það afl,
sem enginn mannlegur máttur ræður
kallar í senn á innri styrk og æðru-
leysi þess, sem sjómennskuna velur.
Það er auðvelt fyrir okkur land-
krabbana að horfa á skipin sigla slétt-
an sjó og sjá þau aftur sigla inn hlaðin
auðæfum hafsins og öfundast út í af-
komu sjómannanna. En við sleppum
svo mörgu, sem snertir tilfinningar,
fjölskyldu og starfsskilyrði. Ef við í
einlægni skoðum starf sjómannsins,
þá mun hver Islendingur, sem það
gerir taka ofan fyrir íslenskri sjó-
mannastétt. í þeirra starfi liggur
grundvöllur þjóðhagslegrar afkomu
okkar og þar er einnig fólginn undir-
tónn þeirrar lífsjátningar, sem felst í
kristinni trú.
Þetta vitum við og þess vegna
fögnum við og gleðjumst og gerum
sjómannadaginn að hátíðardegi. Við
viljum sýna samhug, sýna skilning og
biðja með og fyrir sjómönnum og
fjölskyldum þeirra. Biðja þess að
blessun Guðs megi fylgja þeim, biðja
þess, að okkur megi ljós vera ábyrgð
okkar í sköpunarverkinu, biðja þess
að blessun megi fylgja minningu
þeirra, sem sérstaklega er minnst á
þessum degi og vaka yfir fjölskyldum
þeirra.
Þannig göngum við saman mót
nýjum degi, sem ein stór fjölskylda,
fjölskylda Guðs í þeirri kirkju, sem
hann hefur gefið okkur til blessunar.
Minnisvarði gerður af steinsteypu Sig-
urðar Egilssonar.
Guð blessi íslenska sjómenn og fjöl-
skyldur þeirra og gefi þeim og okkur
öllum gleðilegan og bjartan hátíðar-
dag.
RÆÐA ÞORSTEINS VILHELMSSONAR
SKIPSTJÓRA
ennan sama sunnudag steig
Þorsteinn Vilhelmsson, skip-
stjóri einnig í prédikunarstól
Glerárkirkju og hélt Sjómannadags-
ræðuna fyrir hönd stéttar sinnar. Sú
ræða á erindi á prent.
Þorsteinn ræddi um guðstrú sjó-
manna, sem væri miklu ríkari með
stéttinni í hljóði en í orði. Þá minnti
hann á ábyrgð sjómanna á Sjó-
mannadaginn, og á þann algilda
sannleika, sem gilti um Sjómanna-
dagshaldið, eins og einstaklinga, að
sá sem ekki ber virðingu fyrir sjálfum
sér, hlýtur ekki virðingu annarra.
Ef sjómenn bera ekki virðingu
fyrir Degi sínum, með því að fjöl-
menna og gera veg Dagsins sem
mestan, hljóti virðing almennings og
athygli einnig að minnka. Með Sjó-
mannadeginum, sem lögskipuðum
frídegi, segir Þorsteinn, að sjómönn-
um gefist tækifæri til að auka veg
Sjómannadagsins.
„Góðir kirkjugestir, ég vil byrja á
því, að óska ykkur öllum gleðilegrar
hátíðar. Sérstaklega vil ég óska sjó-
mönnum og fjölskyldum þeirra til
hamingju með daginn.