Sjómannadagsblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 107
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
105
þetta framámenn á Akureyri í þann
tíma. Jakob Frímannsson er ekkert
titlaður af mér. Hann var hæstráð-
andi til sjós og lands.
í næstu stjórn 1947 var svo Helgi
kosinn formaður og var þar fjölda
ára. Albert Sölvason vil ég nefna sér-
staklega til sögunnar. Hann var mik-
ill greindar- og ágætismaður og vel-
viljaður, lagði jafnan gott til mála, en
Krati var hann, en vellukkaður
Krati, sem er heldur fátítt í útgerðar-
málum.
Núverandi stjórn skipa: Sverrir
Leósson, formaður, Halldór Jóns-
son, Erlingur Sigurðsson, Pétur
Bjarnason og Sigurður Jóhannesson.
Framkvæmdastjórasagan er sú, að
fyrstur framkvæmdastjóra var Guð-
mundur L. Guðmundsson, skip-
stjóri. Þegar Guðmundur hætti 1957,
urðu þeir framkvæmdastjórar, Gísli
Konráðsson og Andrés Pétursson,
(hálfu ári síðar en Gísli) og þegar
Andrés hætti 1965, varð Vilhelm
Þorsteinsson framkvæmdastjóri
ásamt Gísla, og þegar Gísli hætti
fyrir ári eða svo gerðist Gunnar
Ragnars framkvæmdastjóri ásamt
Vilhelm.
Enginn af þessum mönnum var
hagfræðingur eða viðskiptafræðing-
ur, enda væri félagið þá ekki 44 ára,
nema nú Gunnar Ragnars, en það á
ekki að koma að sök, honum hljóta
að vera fjármálahyggindi í blóð bor-
in. Fyrsti verkstjóri við togarana var
Bjarni Vilmundarson.
Nýsköpunarfloti Útgerðarfélagsins 1952.