Sjómannadagsblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 113
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
111
Dugnaðarkonurnar. Vantar eina. Kannski ganga þær vaktir eins og á togurum, ein sé í
koju. Þessi mynd með starfslið hjá fyrirtæki með fjóra togara í rekstri, mætti hanga
stækkuð hjá mörgum fyrirtækjum til áminningar um, hvað hægt sé að komast af með,
ef rétt er að málum staðið.
rekstri Hjalteyrar h.f. og loks er að
nefna smíð skips á Spáni, sem áætlað
er að kosti 500 milljónir.
Heildarafli Samherjaskipa og
Oddeyrarinnar 1989 var 13000 tonn,
og söluverðmæti nam 1 milljarði og
100 þús. króna. Það gæti vakið óá-
nægju að Sjómannadagsblaðið fari
að bera saman útkomuna á skipum
Samherja og ýmissa annarra út-
gerða, sem blaðið þekkir til, þar sem
skipin eru undir íslenzku fiskvinn-
slunni.
Raunaukning í veltu hefur verið
allt að 67% 1987 (með raunaukningu
er væntanlega átt við að verðbólgu-
aukning hafi þá verið dregin frá), en
1988 nam þessi aukning 21%. í byrj-
un voru ársverk hjá fyrirtækinu 33 en
eru nú 65, og meðallaun starfsmanna
losuðu fullar fjórar milljónir, og hafa
verið s.l. ár, annað árið þau næst
hæstu í landinu, en hæstu í sjávar-
útvegi.
1988 voru meðallaun starfsmanna
rúmar 4 milljónir og þá þau næst
hæstu í landinu, en þau hæstu í sjáv-
arútvegi. Hagnaður hefur verið á
Samherja á hverju ári frá því rekstur-
inn hófst.
Það þykir einkennandi fyrir rekst-
ur Samherja, að svonefnd yfirbygg-
ing er þar óvenju lítil, nær því óskilj-
anlega lítil. Þorsteinn Már hefur
aðeins þrjár stúlkur sér til aðstoðar.
Þær hljóta að hafa eitthvað annað
fyrir stafni en lesa blöðin eða rabba í
síma við kunningjana að ekki sé nú
talað um Þorstein Má sjálfan. Hann
hlýtur að vera afburðaforstjóri. Und-
ir skrifstofuna heyra öll fjármál, bók-
hald, launaútreikningur, innkaup
rekstrarvara, sala á markaði og
stjórn á veiðum og vinnslu í samræmi
við það, sem hentar mörkuðum
hverju sinni.
Þorsteinn Vilhelmsson er afburða-
aflamaður sem kunnugt er, og það
verður að ætla að Kristján sé afburða
§ —
—m
Fiskiðjuver
Kaupfélags
Austur - Skaftfellinga
Framleiðum
frystar fískafurðir
saitfísk ogskreið
Fiskíðjuver Kaupfélags
Austur - Skaftfellinga
Höfn Homafírði, sími 97-81200