Sjómannadagsblaðið - 01.06.1990, Blaðsíða 114
112
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Það hefði nú mátt nota hrammana á þessum í hákarlinn. Ef þeir væru skeggjaðir gætu
þeir gengið fyrir hákarlaformenn, síðan dálítill tóbakstraumur úr nefninu, og annar úr
munnvikinu, því að margir þeirra notuðu tóbakið í öll skilningavit, jafnvel augun ef
þeir voru syfjaðir. Hákarla Jörundur (ekki Vilhjálmur í Nesi) hengdi upp skrolengjur,
svo hásetar þyrftu ekki að tefja sig á að seilast eftir skroinu innanklæða, heldur gætu
bitið í endana á lengjunni. Svo drukku þeir hákarlalýsi ofan í tóbakslöginn og brennivín
ofan í hákarlalýsið, og skáru svo hákarlinn blóðugir upp til axla. Þetta voru hinir mestu
berserkir, en það eru þessir piltar líka, en þeir eru á annarri öld. Þetta eru þeir Sveinn
Hjálmarsson skipstjóri á Kaldbak og Þorsteinn Vilhelmsson á Akureyrinni. Myndin er
tekinn, þegar þeir voru samskipa á Gamla Kaldbak. Sveinn til vinstri, en Þorsteinn til
hægri.
vélstjóri, þar sem hann er útaf Vil-
hjálmi í Nesi.
Ef þrír afburðaduglegir menn og
hagsýnir leggjast á eitt hlýtur eitt-
hvað undan að ganga.
Fjórði frændinn, Finnbogi, sonur
Baldvins og bróðir Þorsteins Más,
hefur nú gengið til liðs við frændur
sína í fyrirtæki, sem ótalið er hér að
framan, en getið hefur verið í blaða-
fregnum, Saltfiskverkunarfélags
Dalvíkur, sem Samherji hefur keypt.
Þeir Samherjamenn fara mörgum
leiðum fram í sölu afurðanna. Þeir
eru í sambandi við Pétur í ísberg í
Hull, með sölu á Evrópumarkað,
SH. með sölu á Bandaríkjamarkað,
og Nes h.f. með sölu á Asíumarkað.
Einnig selja þeir á fiskmörkuðum í
Reykjavík og Hafnarfirði, og flytja
út í gámum, en stundum sigla togar-
arnir beint á Evrópumarkað. Sem
sagt sölunni er hagað eftir því, sem
hagkvæmast er og þannig á það að
ganga til, ekki hanga í öryggisneti
eins og stóru fisksölusamtökin hafa
gert um áratugi. Samherjamenn hafa
orð á sér að standa í skilum, og geng-
ur það kraftaverki næst í allri þessari
fjárfestingu og þeim fjármagnskostn-
aði sem henni fylgir.
í viðtali sem Frjáls verzlun á við þá
Þorsteinana, er Þorsteinn Már and-
vígur þeirri byggðastefnu, sem held-
ur uppi illa reknum og gjaldþrota
fyrirtækjum, og hefur þar lög að
mæla. Hann segir að þeir sem ekki
geti rekið sjávarútvegsfyrirtæki
núna, geti það ekki fremur eftir eitt
eða tvö ár. Hann er hlynntur kvóta,
segir þar margt skynsamlegt, eins og
hans er von og vísa, og er þó ekki
vandalaust að tala skynsamlega um
kvótakerfið.
Sökum þess hve marga markaði
Samherji selur á, hefur Þorsteinn
Már, góða yfirsýn og segir svo um
markaði og markaðshorfur í grein-
inni í Frjálsri verzlun:
„Astand hefur verið gott á erlend-
um mörkuðum á árinu f989. Ég hef
ekki trú á að raunhæft sé að gera ráð
fyrir styrkari stöðu markaðanna á
næstu árum en verið hefur á árinu
1989. Það gæti jafnvel orðið nokkur
bið á, að við íslendingar fengjum svo
hagstætt ár sem verið hefur nú.
Bandaríkjamarkaður hefur verið
ágætur, Évrópa góð og Asía sæmi-
leg. Ferskfiskmarkaðirnir hafa verið
sterkir, mjöl- og lýsismarkaðir mjög
góðir, saltfiskurinn byrjaði og endaði
vel, rækjan í góðu jafnvægi en karf-
inn á Japansmarkaði var lélegur
framan af árinu en hefur verið að
rétta við. í aðalatriðum má segja að
markaðirnir séu í góðu jafnvægi og
væri óskandi að það ástand héldist“.
Ásg. Jak.