Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 63
6i
Bishop1' aS sínu leyti eins og það var „biskup“, sem flutti
ræðuna á Herranóttum í Skálholti. AS efni til eru „ser-
mons joyeux" ákaflega ólikar. „Les grans et merveilleux
faictz du Seigneur Nemo“ frá 14. öld hefir latneska orðið
Nemo (enginn) í stað guðs, og kemur þá út rökrétt pré-
cíikun, en fáránleg, t. d. segir prédikarinn: „Nemo er al-
góður", „Nemo kann tveimur herrum að þjóna“ o. s. frv.
Aðrar „sermons joyeux" eru lagðar út af lifi tilbúinna dýr-
linga og hafa að texta ýmiss konar guðfræðilegan útúr-
snúning. Þar sem hinar frönsku gamanræður hafa ekki ver-
ið áhrifalausar á fyrstu leikritun þar i landi1), furðar mann
siður á því, að hér á landi er Skraparotsprédikunin undan-
fari fyrsta leikritsins, sem fram kemur, „Sperðils“ sira
Snorra Björnssonar á Húsafelli. Hitt er furðulegra, að
skólapiltar skuli taka upp „pápiskar" tyllidagavenjur svo
seint í lúterskum sið og jafnvel hafa þær út hingað, eftir
að þær voru lagðar niður annars staðar. Tvær heimildir
eru athyglisverðar í þessu sambandi. Hin yngri segir, að
skólapiltar i Skálholti hafi „tekið upp fyrir nokkrum ár-
um hinn forna pápiska sið á jólanóttunni að kveikja ljós
í skólanum“ (Finnur bislcup Jónsson 1770), en hin eldri,
Manducus sira Þorsteins Péturssonar á Staðarbakka, gef-
ur til kynna, að „pápiskar" jólaskemmtanir hafi ekki verið
rneð öllu ókunnar á skólavistarárum sira Þorsteins (1729
—34). Eðlilegast er að hugsa sér, að gamanræður á borð
við Skraparotsprédikun, en í ætt við „sermons joueux", hafi
verið hafðar um hönd hér á landi i kaþólskum sið, hve-
nær svo sem skólapiltar i Skálholtsskóla hafa tekið þær upp.
Tilefni Skraparotsprédikunar á Herranóttum í Skálholts-
skóla er gamansöm konungskrýning. Sá piltur, er hlaut
efsta sætið í skólanum (supremus), var krýndur kóngur.
Þá voru tilnefndir veraldlegir höfðingjar, svo sem Cansli-
arius rcgni primanus og secundarius, Inspcctor regni prun.
og sec. (Fyrsti og annar kanslari konungs, fyrsti og annar
marskálkur), stiftamtmaður, lögmaður, sýslumenn (dómar-
1) Sjá: J. P. Jacobsen: Det komiske Dramas Oprin-
delse og Udvikling i Frankrig för Renaissancen. Kbh. 1903.