Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 89
87
Arnarbælis í Ölfusi1), in sömu og í ætt Þorsteins
lögmanns á Uröum (Arnfinnur og Jón Arnfinns-
son þar) og benda nöfn þessi á það, a<5 Arnbæl-
ingar þessir hafi veriÖ frændur Þorsteins lögmanns,
af ætt Sturlu Hálfdanarsonar.
Tumi yngri Sighvatsson, bróðir Steinvarar á Keld-
um, átti bú í Arnarbæli 12422), og gefur það í
skyn, að Tumi hafi átt Arnarbæli, en síðan Stein-
vör, systir hans. Gat það verið arfur frá Þuriði
Gizurardóttur, Hallssonar, móður Halldóru Tuma-
dóttur, móður Sighvatsbarna. En þá verður séð,
hvernig Arnarbæli hefir gengið í arf til niðja Sturlu
Steinvararsonar, líkt og Grund í Svarfaðardal. Sé
áætlanir mínar um framætt Þorsteins á Urðum hér
á undan réttar, og þær hygg ég, að seint verði
hraktar með betri rökum, — þá renna eðlilegar
stoðir að þvi, að Þorsteinn lögmaður varð virð-
ingamestur allra íslenzkra leikmanna um sína daga,
sem ekki verður annars vel skilið. Eftirtektarvert
er og það, að hann er svo oft talinn meðal inna
virðingamestu höfðingja af Oddaverjaætt í Annál-
um og skjölum3).
Flestir eða allir Islendingar, sem nú lifa, munu
vera af Þorsteini lögmanni komnir, ýmist í karl-
legg eða gegnum ýmsa kvenliðu.
Eg hefi annars sta'öar4) getið þess, að kona Þor-
steins lögmanns hefii; ekki verið „Arnþrúður Magn-
úsdóttir frá Svalbarði", sem menn hafa talið, vegna
misskilnings nokkurs, — heldur án efa sú Kristín
1) D.í. IV, bls. 98; sbr. D.í. III, bls. 713—714.
a) Sturl. "II, 9.
3) D.í. III, bls. 209, 617; sbr. Annála, margvíða.
4) „Bútar“, bls. 2—3, 39 o. v.; Blanda VI, bls. 377
—380.