Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 116
114
hluta 12. aldar, og Brandr príór Halldórsson
fróði, er skráði raest Breiðfirðingakyn og gæti
hafa verið uppi síð 11. aldar og ef til vill fram
á 12. öld. Þá eru nokkrir fleiri höfðingjar ætt-
færðir, Hafliði Másson á Breiðabólstað í Vest-
urhópi, Þorvaldr Kjartansson í Vatnsfirði, Bárðr
svarti í Selárdal Atlason, Markús Skeggjason
lögsögumaður, Sighvatr Surtsson lögsögumaður,
Hallr Þórarinsson í Haukadal og Kolskeggr
fróði Ásbjarnarson. Ætt er og rakin til Þor-
steins rangláts Einarssonar og þaðan til Hauks
lögmanns og Melamanna og um Þorgils Oddason
til Melamanna, en vera má, að hvort tveggja
séu aukar við Frum-Landnámu. Loks er rakin
ætt frá Ingólfi landnámsmanni í beinan karllegg
til Þormóðar nokkurs Skeiðagoða Guðmundar-
sonar, sem er 9. maður talinn frá Ingólfi og
gæti verið fæddur litlu eftir 1100. Nokkrar kon-
ur klerka og höfðingja eru og sérstaklega ætt-
færðar, svo sem Dalla Þorvaldsdóttir, kona ís-
leifs biskups, Steinunn Þorgrímsdóttir, kona
Gizurar biskupps, Guðrún Kolbeinsdóttir, kona
Sæmundar fróða, Þórríðr Þórðardóttir, fyrri
kona Hafliða Mássonar, Ingveldr Atladóttir,
kona Snorra Húnbogasonar lögsögumanns, Val-
gerðr Torfa — eða Tjörva — dóttir, kona Run-
ólfs Ketilssonar biskups, Ingunn Þorsteinsdótt-
ir, kona Ásbjarnar Arnórssonar, o. fl. Af kyn-
göfgum prestum, sem taldir eru 40 í skránni
frá 1143 (ísl. fbs. I. bls. 185—186) eru að eins
með vissu 5 nefndir í Frum-Landnámu (Finnr
Hallsson, Bjarnhéðinn Sigurðarson, Hallr Teits-
son, Björn Gilsson og Runólfr Ketilsson), en
vera má, að ætt hafi þar einnig verið rakin til
Páls prests Sölvasonar í Reykholti (sbr. bls. 72)