Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 218
216
Jóns á Hvoli og Þorsteins í Kalmanstungu, var
Elín Pálsdóttir, systir Ögmundar biskups, segir
séra Þórður (s. st.). Séra Þórður hefir, eftir því
sem ætt hans vísar til, vafalaust þekkt föður-
nafn Páls, föður þeirra ögmundar biskups og
Elínar ættmóður sinnar, eftir frásögn fyrr-
taldra langfeðga sinna, auk þess sem ætla má,
að Guðmundur lögréttumaður á Hvoli, föður-
faðir séra Þórðar, hafi borið nafn Guðmundar,
föður Páls, föður Elínar, ættmóður séra Þórð-
ar. Sé það rétt, að nafn Guðmundar á Hvoli
stafi frá samnefndum föður-föður Elínar Páls-
dóttur, bendir það í þá átt, að Guðmundur,
faðir Páls, hafi verið merkur maður og því
minnistæður niðjum sínum. Til þess að finna
framætt Páls, föður Ögmundar biskups, verða
menn nú að rannsaka hana eftir öðrum leiðum
en áður hefir reynt verið, þar sem nú má telja
víst, eftir athugunum mínum í A-hluta ritgerð-
ar þessarar, að Páll, faðir Ögmundar biskups,
var ekki Jónsson, heldur Guðmundarson, eins
og séra Þórður í Hítardal, niðji Páls, segir.
Einhvern tíma á árunum 1497—1515, líklega
um 1497 hefir Björn Guðnason í Ögri keypt
helming Ásgarðs í Hvammssveit af Þórólfi Ög-
mundarsyni (móðurbróður Ögmundar biskups:
D. í. IX, nr. 581, bls. 701). Þetta vottar í Ás-
garði Jón Eiríksson 1534 og segist hafa haft
umboð Bjarnar í 20 ár eða lengur yfir Ásgarði
og öðrum jörðum Bjarnar þar í sveit (þ. e. í
Hvammssveit), og verður það á árunum 1498—-
1518, því að Björn Guðnason dó 1518. Segú’
Jón, að Björn hafi goldið Þórólfi fyrir 1/2 Ás-
garð Ketilstaði (í Hvammssveit) og 6 kúgildi.
1439 bjó í Ásgarði Tumi Bergþórsson (sem