Blanda - 01.01.1940, Blaðsíða 227
225
2) Gizur [ísleifsson], finnst þó ekki nefndur
með föðurnafni í skjalabrotum þeim, sem
nú eru til, en aðeins í föðurnafni fyrr-
greinds Halls Gizurarsonar (1384), þá lík-
lega látinn, fæddur c. 1305—10; þeir feðg-
ar: ísleifur, Gizur og Hallur, hafa erft Ás-
garð og líklega búið þar hver eftir annan,
og kemst þar enginn knérunnur í milli eftir
tímatalinu. Bróðir Gizurar þessa hefir ein-
mitt verið Eiríkur ísleifsson (D. í. IV, bls.
435—6; sbr. „Blöndu“ VI, bls. 386) í Auð-
626, bls. 705). Bróðir Halls Sighvatssonar mun vera:
Guðmundur Sighvatsson, dómvottur meðal annarra í
Lambey og á Keldum í Rangárþingi 9. og' 10 sept.
1471 Erlends sýslumanns Erlendssonar um Krossreið
(D. í. V, bls. 637), — fæddur c. 1400 eða siðar, — faðir
Sighvats, er kemur við bréf á Snæfellsnesi og í Skál-
holti 1469, 1471 og 1479 (D. í. V, bls. 555, og VI, 214.
og 215. bls.), f. c. 1440. Hann var sveinn Sólveigar,
dóttur Bjarnar rika, og gæti verið faðir Gizurar (Sig-
hvatssonar), er keypti Botn við Hvalfjörð fyrir Hall-
kelstaði í Hvítársíðu 1525, föður Sighvats, föður þeirra
Sæmundar og Þorsteins lögréttumanns í Höfn (d. c.
1595) í Borgarfirði, sem fjölmennar ættir eru frá komn-
ar. Framætt Gizurar Sighvatssonar í Botni er þó ekki
fullviss, og mætti vegna Sæmundarnafnsins þar litlu
siður ætla, að Sighvatur, faðir Gizurar, sem raunar
mun vera son Guðmundar (1471) Sighvatssonar, hafi
verið frændi Guðmundar Gizurarsönar, sem lézt af
áverka 1394, er Oddur Sigurðarson (Oddssonar) veitti
honum (Flateyjarannáll). Guðmundur þes.si hefir senni-
lega verið bróðir Halls Gizurarsonar úr Ásgarði. En
bróðir þeirra Guðmundar og Halls gæti verið Þórarinn
Gizurarson í Hvítársíðu (bréf 1417), faðir þeirra Sæ-
mundar og Sighvats, máske föður Guðmundar, föður
Sighvats, föður Gizurar í Botni (1525 og síðar), og er
það þá allt ein ætt og fyrr getur. En mér þykir fyrri
ættfærslan um Gizur í Botni líklegri.
Blanda VII
15